Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/794
Í ritgerð þessari er fjallað um réttindi dýra, hvort þau séu til, hvernig þau eru vernduð og
hver grundvöllur þeirra er. Reynt er að varpa ljósi á hvernig dýraverndarmálum er háttað á
Íslandi frá lögfræðilegu sjónarmiði. Í upphafi er farið yfir nokkrar kenningar um þetta
málefni og gerð tilraun til að varpa ljósi á réttindi dýra frá heimspekilegu sjónarmiði. Því
næst er fjallað um réttindi dýra samkvæmt núgildandi löggjöf á Íslandi, þróun réttarins og
grundvöll hans. Farið er stuttlega yfir úrræðaferli þar sem það er til staðar og sýnt hvernig
löggjafinn meðhöndlar mismunandi dýrategundir. Að lokum er fjallað um helstu dómsmál
undanfarinna ára sem fjölluðu um illa meðferð á dýrum til að varpa ljósi á hvernig
löggjöfin er túlkuð og jafnvel til að sýna fram á hvar skóinn kreppir í þessum málum.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Um réttindi dýra.pdf | 637.17 kB | Takmarkaður | Um réttindi dýra - heild |