Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/7952
Þessi tilviksrannsókn beinist að nemendum sem var hraðað úr sunnlenskum grunnskólum í Fjölbrautaskóla Suðurlands (FSu), á árunum 2007-2010. Megintilgangur rannsóknarinnar er að kanna áhrif stefnumótunar um hröðun í námi milli grunn- og framhaldsskóla á námsframvindu nemendanna. Í rannsókninni var beitt megindlegri aðferðafræði og byggt á rannsóknartilgátum sem hvíla á þeirri kenningu að hröðun úr grunn- í framhaldsskóla veiti bráðgerum nemendum nám við hæfi og svari félags- og tilfinningalegum þörfum þeirra. Gagnasöfnun fólst í samantekt á námsárangri og einingafjölda umræddra nemenda sem og niðurstöðum spurningakönnunar um líðan þeirra og viðhorf.
Upplýsingar um áhrif stefnumótunar á hröðun íslenskra nemenda eru ekki til og fram að þessari rannsókn hafa hvorki verið gerðar íslenskar rannsóknir á námsárangri og námsframvindu hraðaðra nemenda né á líðan þeirra, félagslegri stöðu eða viðhorfi til hröðunar. Helstu niðurstöður eru að stefnumótun hefur jákvæð áhrif á námsframvindu nemendanna, námsgengi þeirra og námsframvinda er framúrskarandi. Hröðuðu nemendunum líður mjög vel en tvíræðara er um jákvæð áhrif á félagstengsl. Þá hafa allir nemendurnir jákvætt viðhorf til hröðunar. Áhrif grunn- og framhaldsskólalaga 2008 á stefnumótun í FSu voru ekki langvinn en niðurskurður fjárframlaga af hálfu ríkisins hefur sett stefnuna í uppnám.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
MPA thorunn_jona.pdf | 7.14 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |