is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/7964

Titill: 
  • Að leiða breytingar. Viðhorf og aðferðir milli- og framlínustjórnenda við undirbúning og framkvæmd breytinga
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Rannsókn þessi er athugun á breytingastjórnun út frá milli- og framlínustjórnendum skipulagsheilda sem starfa í hugbúnaðar- og fjarskiptageiranum. Markmið rannsóknar er að varpa ljósi á raunverulega stöðu á undirbúningi og framkvæmd breytinga hjá skipulagsheildum í þessum geira. Viðhorf þeirra og reynsla er skoðuð með áherslu á þætti breytingastjórnunar auk þess sem farið er yfir æskilega eiginleika sem stjórnendur þurfa að búa yfir til að leiða breytingar. Rannsóknarspurning ritgerðarinnar er: Hvert er viðhorf og hverjar eru aðferðir stjórnenda við undirbúning og framkvæmd breytinga?
    Um er að ræða eigindlega rannsókn þar sem kenningar um breytingastjórnun og stjórnendur eru lagðar til grundvallar. Níu hálfopin viðtöl voru tekin við milli- og framlínustjórnendur sem leitt hafa breytingar sem hafa haft bein áhrif á dagleg störf starfsfólks.
    Rannsóknin leiddi í ljós að hlutverk milli- og framlínustjórnenda er margþætt. Það er allur gangur á því hvort og þá með hvaða hætti milli- og framlínustjórnendur taka þátt í ákvarðanaferli fyrir breytingar og almennt starfsfólk kemur nánast ekkert að þeirri vinnu. Þegar kemur að undirbúningi og framkvæmd breytinga leitast stjórnendur við að gera breytinguna að verkefni heildarinnar, þannig að starfsfólk taki sem mesta ábyrgð á framkvæmd hennar. Viðbrögð og aðgerðir sem beinast að starfsfólki í breytingaferli byggjast að mestu leyti á tilfinningu stjórnenda hverju sinni. Af þeim sökum má ætla að stjórnendur eigi á hættu að missa af tækifærum sem góður undirbúningur og ferlar geta gert fyrir framgang breytinga.

Samþykkt: 
  • 26.4.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/7964


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Að leiða breytingar.pdf1.09 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna