is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/8037

Titill: 
  • Framtíðarfyrirkomulag fjármálaeftirlits á Ísland: Væri hagkvæmt að sameina Fjármálaeftirlitið og Seðlabanka Íslands?
  • Titill er á ensku The future of financial supervision in Iceland
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Í þessari ritgerð er fjallað um þróun og núverandi umgjörð fjármálaeftirlits hér á landi og lagt mat á það hvort þörf sé á breytingum eftir þá bresti sem áttu sér stað í aðdraganda fjármálakreppunnar. Farið er yfir umgjörð fjármálaeftirlits í Evrópu fyrir og eftir fjármálakreppu og kosti og galla mismunandi fjármálaeftirlitslíkana. Gerð er grein fyrir fræðilegri umræðu alhliða fjármálaeftirlitslíkans á alþjóðavettvangi og áhrifum fjármálakreppunnar á skilvirkni líkansins. Þessi atriði eru síðan borin saman við íslenska Fjármáleftirlitið, Seðlabanka Íslands og samstarf þeirra. Niðurstaðan er sú að ekki var reiknað með mikilvægi samvirkniáhrifa milli starfsemi hefðbundins bankaeftirlits og starfsemi seðlabanka við fjármálastöðugleika. Of mikil áhersla var lögð á eindarvarúðareftirlit sem tók ekki nægilegt mið af kerfislegri áhættu og of lítil áhersla var lögð á mikilvægi þjóðhagsvarúðareftirlits og hlutverk Seðlabanka Íslands á sviði fjármálastöðugleika. Vægi kosta og galla við mismunandi umgjörð fjármálaeftirlits er bjöguð og þarfnast leiðréttingar. Þessi leiðrétting felur í sér aukið hlutverk seðlabanka á sviði eindarvarúðareftirlits. Hvort sem það er breytt skipulag fjármálaeftirlits í formi tveggja turna líkans eða annars fyrirkomulags sem gerir ráð fyrir nánari tengingu við starfsemi seðlabankans heldur en hið núverandi alhliða fjármálaeftirlitslíkan gerir ráð fyrir.

Samþykkt: 
  • 29.4.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/8037


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Kristján Þór Matthíasson.pdf869.39 kBLokaðurHeildartextiPDF