is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/8038

Titill: 
  • Kúbönsk rúmba. Spegill samfélagsins
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Í þessari ritgerð bendi ég á að tengsl dans við samfélög getur verið á marga vegu. Ef kúbanskt samfélag er skoðað má sjá að kúbönsk rúmba spilar þar stórt hlutverk. Kúbanska rúmban endurspeglar bæði líkamlega menningu samfélagsins og þær samfélagslegu aðstæður sem voru til staðar þegar dansinn varð til. Dansinn varð til á meðal þrælanna á Kúbu þar sem þeir komu saman til að gera grín að yfirboðurum sínum og hreyfingarnar endurspegluðu þær aðstæður sem þeir bjuggu við. Þeir tjáðu kúgunina í gegnum dansinn og gerðu uppreisn gegn stöðu sinni í dulbúnu formi. Gerð kúbönsku rúmbunar að þjóðdansi Kúbu tengist svo hugsjónum byltingarstjórnarinnar þar sem helsta markmiðið var að nota dansinn sem sameiningartákn þjóðarinnar. Tengsl dansins við hugmyndir um kynjahlutverk og stöðu kynjanna í samfélaginu má einnig lesa út úr honum, því ef danssporin eru skoðuð má sjá að sporin endurspegla yfirráð karlanna yfir konunum á Kúbu. Kúbanska rúmban er því hápólitískur dans, þar sem völd og orðræða hafa haft áhrif á dansinn, sem einnig hefur verið mikilvægur hlekkur í sameiningarbaráttu byltingarstjórnarinnar. Þegar samfélög eru rannsökuð er því mikilvægt að sleppa því ekki að skoða dans því hann getur miðlað þekkingu um hvaða breytingar hafa orðið í samfélaginu.

Samþykkt: 
  • 29.4.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/8038


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Kúbönsk rúmba.pdf205.44 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna