Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/8044
Meginmarkmið þessarar rannsóknar er að öðlast vitneskju á því hvernig gengur hjá fósturforeldrum þegar barn er tekið í fóstur. Gerð var eigindleg rannsókn. Tekin voru viðtöl við þrenn hjón sem eru starfandi fósturforeldrar. Viðmælendur voru þrjár konur og þrír karlmenn, á aldrinum 42-50 ára. Meginmarkmið með rannsókninni var að heyra upplifun fósturforeldra á því hvernig ferlið fór fram þegar þau gerðust fósturforeldrar og hvernig stuðning þau fengu á meðan vistun stóð yfir. Helstu niðurstöður leiddu í ljós að viðmælendur voru sammála um að betri upplýsingar þarf að veita fósturforeldrum. Fósturforeldrar voru sammála um að það þyrfti að bæta stuðning við fósturbarnið og auka þyrfti fjármagn í málaflokkinn.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Ba-ritgerð lokaskil á skemmu.pdf | 692.72 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |