is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/8080

Titill: 
  • Fjölbreytileiki er styrkur sem ber að nýta. Fjölmenningarleg menntun í grunnskólum
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Hugtakið barnæska hefur tekið miklum breytingum undanfarin ár og aldir. Í dag er barnæska talin vera mikilvægt lífsskeið og börn gjarnan álitin vera virkir þátttakendur samfélaga. Í hnattvæddum heimi nútímans standa samfélög frammi fyrir nýjum spurningum sem snúa meðal annars að því hvernig auka megi jafnrétti allra, óháð menningu, tungumálum og trúarbrögðum. Ísland er þar engin undantekning enda hefur fjölbreytileiki hér á landi aukist til muna undanfarin ár. Menntastofnanir standa frammi fyrir nýjum áskorunum þar sem saman eru komin börn af margvíslegum uppruna með ólíkan menningarlegan bakgrunn og tungumál. Hér verður skoðað hvað felst í hugtakinu fjölmenningarleg menntun og hverjir eru helstu áhrifaþættir hennar. Jafnframt verður greint frá því hvernig innleiða megi hugmyndafræði fjölmenningarlegrar menntunar inn í menntastofnanir. Fjallað verður um nokkrar íslenskar rannsóknir um börn af erlendum uppruna en rannsóknir sem gerðar hafa verið hér á landi og annars staðar sýna fram á jaðarstöðu barna af erlendum uppruna í skólum.

Samþykkt: 
  • 29.4.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/8080


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BAritgerð.pdf455.67 kBLokaðurHeildartextiPDF