is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/8098

Titill: 
  • Sakhæf börn. Fullnusta refsinga og úrræði sem í boði eru
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Tilgangur þessarar ritgerðar var að skoða hvernig fullnusta refsinga færi fram hjá sakhæfum börnum en ekkert unglingafangelsi er að finna hér á landi. Hópurinn sem var skoðaður samanstendur af börnum á aldrinum 15‐18 ára sem brotið hafa gegn lögum. Þá var einnig skoðað hvernig fullnustu refsingar er háttað í nokkrum öðrum löndum til samanburðar og hvort læra má eitthvað af þeim sem Íslendingar gætu nýtt sér. Verkefnið er byggt upp sem heimildaritgerð og voru helstu niðurstöður á þá leið að þrátt fyrir að þessi aldurshópur standi að stórum hluta allra afbrota, þá virðast ekki margir fá óskilorðsbundinn dóm. Nokkrir einstaklingar, sem hljóta óskilorðsbundinn dóm, afplána hann á meðferðarheimilum en fáeinir í fangelsum landsins. Þegar börn eru vistuð með fullorðnum föngum er það brot á samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins. Íslendingar búa ekki yfir neinni stofnun sem er sérhönnuð fyrir sakhæf börn. þegar börn komast í kast við lögin er algengast að mál þeirra séu leyst með ákærufrestun, sáttamiðlun eða þau hljóti skilorðsbundinn dóm.

Samþykkt: 
  • 2.5.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/8098


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BA_Asgeir.pdf383.77 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna