is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/8128

Titill: 
  • Samanburður á hreinni eign lífeyrissjóða miðað við fjárfestingu eftir eignasamsetningu árið 2000
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Eftir hrun á fjármálamörkuðum í október 2008 hafa lífeyrissjóðir sætt mikilli gagnrýni vegna fjárfestinga og fjárfestingastefnu sjóðanna fyrir hrun.
    Í ritgerðinni er fjallað um starfsemi og starfsumhverfi íslenskra lífeyrissjóða en megináhersla er lögð á fjárfestingarheimildir, mótun fjárfestingarstefnu og þróun eignasamsetningar lífeyrissjóðanna.
    Einnig er sett upp rannsóknarmódel þar sem leitast er við að varpa ljósi á hver hrein eign til greiðslu lífeyris hefði orðið í árslok 2008. Módelinu er stillt þannig upp að ekki er um virka stýringu að ræða eða gert ráð fyrir að stjórn hefði mótað aðra fjárfestingarstefnu á tímabilinu. Því var fjárfest allan tímann samkvæmt þeirri eignasamsetningu sem var í árslok 2000 og niðurstaða fengin um hver hrein eign til greiðslu lífeyris hefði verið miðað við þá fjárfestingarstefnu.

Samþykkt: 
  • 2.5.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/8128


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Samanburður á hreinni eign lífeyrissjóða miðað við fjárfestingu eftir eignasamsetningu árið 2000.pdf528.98 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna