is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/8150

Titill: 
  • Úrræði á Íslandi fyrir unga áfengis- og vímuefnaneytendur með áhættuhegðun og aðstandendur þeirra
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Hvert geta ungir fíklar með áhættuhegðun og aðstandendur þeirra leitað þegar þeir þurfa á hjálp að halda vegna áfengis og vímuefnavanda og hvaða úrræði hafa ríkið, sveitarfélög og félagasamtök upp á að bjóða fyrir þessa einstaklinga? Það getur reynst erfitt að skilja og velja milli þeirra fjölmörgu úrræða sem í boði eru þegar á þarf að halda. Markmiðið með þessari ritgerð er að auðvelda lesendum að átta sig á úrræðunum, skilja unglinga með áhættuhegðun og hvað orsakar vandann. Félagsráðgjafar starfa gjarnan með þessum unglingum hjá barnaverndarnefndum , eftir barnaverndarlögum nr. 80/2002. Þeir hafa víðtæka menntun og sérhæfingu á sviði banaverndarmála.
    Við gerð ritgerðarinnar var notast við eigindlega rannsókn. Viðtöl voru tekin við þrjá sérfræðinga á sviði barnaverndarmála og leitast við að fá sýn þeirra á aðstæður unglinga með áhættuhegðun í samfélaginu. Betur mætti koma að skipulagningu úrræðanna, t.d ef nálgast mætti upplýsingar um þau á einum stað, en niðurstöður eigindlegu rannsóknarinnar benda til þess að úrræðin séu ekki nægjanleg. Þörf er á fleiri meðferðarheimilum á landsbyggðinni og grípa þarf fyrr inn í vandamál barna og unglinga með áhættuhegðun. Einnig kom fram að unglingar sem sýna áhættuhegðun hafi gjarnan orðið fyrir áföllum í lífinu sem orsaki hjá þeim vanmáttarkennd, t.d. óæskilegum uppeldisaðferðum, vanrækslu, líkamlegri misnotkun í æsku eða tekið þátt í ótímabærum kynlífsathöfnum.

Samþykkt: 
  • 2.5.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/8150


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Ba-ritgerðlokaguðjon.pdf1.08 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna