Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/8158
Í þessari ritgerð var leitast við að svara tveimur rannsóknarspurningum þar sem athugað var hvort velferðarþjónusta fyrir barnafjölskyldur hafi tekið breytingum í sveitarfélögunum Árborg og Reykjanesbæ á árunum 2008 til 2010. Þá er fjallað um hvort sveitarfélögin fóru ólíkar leiðir á sviði velferðarþjónustu.
Rannsóknarspurningum þessum var svarað með því að bera saman stöðu sveitarfélaganna Árborgar og Reykjanesbæjar á árunum 2008 til 2010. Notast var
meðal annars við það lagaumhverfi sem sveitarfélögum ber að fara eftir við þá þjónustu sem þau bjóða upp á og skoðaðar voru gjaldskrár frá árunum 2008 til 2010. Helstu niðurstöður voru þær að ekki var mikil breyting á þjónustu við barnafjölskyldur nema að því leyti að gjaldskrár höfðu hækkað bæði í Árborg og Reykjanesbæ, þjónustan hafði ekki tekið miklum breytingum þrátt fyrir miklar hagræðingar.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BA-ritgerð.pdf | 568.66 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |