is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/8204

Titill: 
  • Ímynd Íslands í Bandaríkjunum. Samanburður þjóðfélagshópa
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Markmið þessa verkefnis var að skoða ímynd Íslands meðal íbúa á austurströnd Bandaríkjanna með það í huga að greina þá hópa sem hafa hvað mesta vitund fyrir ímynd landsins. Var þetta gert með því augnamiði að athuga hvort einangra mætti þessa hópa út frá skilgreindum breytum sem hægt væri að skoða, svo sem tekjum, menntun eða aldri. Með betri vitneskju um hvaða hópar það væru sem einhverja vitund hefðu fyrir landi og þjóð væri mögulegt að stýra enn frekar markaðsstarfi í Bandaríkjunum. Með tilkomu Iceland Naturally og faglegri vinnu sem við það verkefni var unnið hefur árangur náðst á þessum markaði. Rannsakandi lagði fram nýtt líkan til að meta ímyndir þjóða ímyndasól þjóða og byggir það á eldri líkönum sem finna má um viðfangsefnið.
    Rannsóknin byggði að hluta til á opnum ummælum sem aflað var árið 2007 fyrir Ferðamálastofu. Um var að ræða eigindleg ummæli sem kóðuð voru til megindlegrar úrvinnslu. Jafnframt var notuð eigindleg aðferðarfræði og viðtöl tekin við fimm aðila sem ýmist vinna á eða hafa unnið á Bandaríkjamarkaði. Rannsóknarspurningin laut að því hvað einkenndi ímynd Íslands meðal íbúa á austurströnd Bandaríkjanna. Jafnframt voru tilgátur um að meiri menntun, tekjur eða aldur hefðu í för með sér aukna vitund fyrir ímynd Íslands.
    Helstu niðurstöður rannsóknarinnar voru þær að þegar tekið var tillit til þess hve vitund fyrir ímynd Íslands væri mismunandi, tengist ímynd Íslands fyrst og fremst náttúru svipað og finna mátti hjá nágrannaþjóðum okkar. Þegar hins vegar ef horft var á öll ummæli eru það þættir tengdir snjó, kulda og ís sem eru mest afgerandi. Tilgátur um að menntun, tekjur og aldur tengdust því að fólk hefði aukna vitund fyrir Íslandi féllu í rannsókninni.

  • Útdráttur er á ensku

    The goal of this project was to explore Iceland’s image among residents of the United States’ East Coast, with a focus of analyzing the groups that are most aware of the country’s image. This was done in order to explore if these groups can be isolated with regards to specific variables that could be further analyzed, such as income, education or age. With improved knowledge on what groups are aware of the country and nation it might be possible to steer further marketing in the United States. With the advent of Iceland Naturally and the great professional work carried out there, considerable progress has been made in the market. Researcher proposed a new model to evaluate nation´s image. Nation´s image sun, which is based on existing models in the literature.
    The research was partially based on open statements that were collected in 2007 for the Iceland Tourist Board. These comments are qualitative and were coded for quantitative processing. Furthermore, qualitative methodologies and interviews were carried out with five individuals that work, or have worked in the United States market. The research question was evolved around what characterizes the image of Iceland among residents of the United States’ East Coast. Moreover, it was speculated that more education, higher income or higher age resulted in increased awareness for the image of Iceland.
    The primary results of the research is that considering the variety in awareness for the image of Iceland, the awareness is primarily focused on nature, similar to what can be found by our neighboring nations. On the other hand, when considering the total mass there are factors connected to snow, cold and ice that are most dominant. Moreover, the hypothesis: Higher awareness connected to higher education levels, income levels and higher age was not supported by this research.

Tengd vefslóð: 
Samþykkt: 
  • 3.5.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/8204


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
MS-ritgerd-AS-prentutgafa.pdf1.58 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna