is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/8215

Titill: 
  • Arður. Um úthlutun arðs og hvaða afleiðingar það hefur að taka út úr félagi með óheimilum hætti
  • Titill er á ensku Dividends. Received dividends and the consequences of unlawful dividend payments
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Markmið ritgerðarinnar um arðgreiðslur var að rannsaka annars vegar þann mun sem er á arðgreiðslum til hluthafa eftir félagsformi og hins vegar að skoða þá þróun sem orðið hefur á undanförnum árum í lögum og meðferð skattayfirvalda á arðgreiðslum. Við rannsókn þessa skoðaði ég lög og reglur og bar saman lagasetningu og útfærslu skattayfirvalda á lögum og reglum um meðferð arðgreiðslna. Í þessum tilgangi leitaði ég til sérfræðinga, bæði innan vébanda háskólasamfélagsins og hjá skattayfirvöldum (yfirskattanefnd).
    Kannaðar voru helstu tegundir af duldum arði og hvaða leiðréttingar þarf að gera á skattskilum félags og eigenda til að upphefja þau. Þá voru borin saman leiðréttingarferli samkvæmt hinni klassísku aðferð sem tíðkaðist hér á landi þegar óheimil úttekt úr félagi skattlagðist sem arður og útfrá 2. mgr. 11. gr. TSL sem stunduð er í dag, þegar óheimil úthlutun skattleggst sem laun eða gjöf. Í seinni aðferðinni getur félagið dregið launahækkun hluthafa sem er starfsmaður frá tekjum félagsins sem rekstrarkostnað og mildað þannig skatthækkunina. Niðurstöður sýna að leiðréttingarferli útfrá 2. mgr. 11. gr. TSL er betri aðferð fyrir skattyfirvöld heldur en klassíska aðferðin. Sýnt var að hluthafinn sjálfur er mun verr staddur þegar leiðréttingarferli fer í gegnum 2. mgr. 11. gr. TSL en þar sem hluthafinn er undantekningarlaust eigandi að félaginu í svona tilvikum, þá nýtur hann óbeint góðs af frádrætti sem félagið fær.

Samþykkt: 
  • 3.5.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/8215


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
MS ritgerð.pdf964.08 kBLokaðurMeginmálPDF
Kápan.pdf25 kBOpinnForsíðaPDFSkoða/Opna