Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/828
Markmið þessa verkefnis er að skoða möguleika til starfrækslu
sumarafþreyingar og nýtingu á eignum í Hlíðarfjalli við Akureyri.
Í upphafi er velt upp hugmyndum höfundar um hvað hægt sé að gera í
fjallinu og hvernig hægt sé að nýta það sem þar er til staðar núna og
hverju sé mögulega hægt að bæta við.
Í fyrsta hluta verður gerð grein fyrir hugmyndunum sem voru upphafið
að verkefninu, síðan verður fjallað fræðilega um þá þætti ferðaþjónustu
sem snerta verkefnið, það er ferðamennsku, tegundir ferðamanna,
afþreyingu og sjálfbærni í ferðamennsku. Því næst verður gerð grein
fyrir rannsókninni sem gerð var í sambandi við verkefnið. Þar á eftir fer
greining á tveimur norrænum skíðasvæðum, það er hvernig starfsemi
þar er háttað á sumrin. Síðan er gerð greining í tengslum við
rannsóknina og útkoman borin saman við fræðilega þáttinn. Þá er
komið fram með tillögur og umræður sem byggja á túlkun
rannsóknarinnar. Í lokin eru settar fram niðurstöður þar sem
rannsóknarspurningunum er svarað eftir greiningu rannsóknar.
Niðurstöður rannsóknarinnar eru að möguleiki sé til afþreyingar í
Hlíðarfjalli á sumrin. Fjöldi ferðamanna, bæði innlendra og erlendra,
sem heimsækir Akureyri og áhugi þeirra á náttúrutengdri afþreyingu
bendir til þess. Áhugi heimamanna fyrir gönguferðum og
fjölskyldugarði virðist einnig vera fyrir hendi. Tækifæri virðast vera til
að miða á nýja markhópa, eins og áhugafólk um fjallahjólamennsku,
svifdrekaflug, klifur og þess háttar íþróttir tengdar útivist. Þær eignir
Hlíðarfjalls sem hægt væri að nýta yfir sumartímann eru: Húsið í
Strýtu, stólalyftan og hótelið.
Lykilorð:
• Ferðaþjónusta
• Afþreying
• Frístundir
• Hlíðarfjall
• Eignanýting
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Efnisyfirlit.pdf | 143.69 kB | Opinn | Úr hásæti - efnisyfirlit | Skoða/Opna | |
Heimildaskra.pdf | 136.98 kB | Opinn | Úr hásæti - heimildaskrá | Skoða/Opna | |
Sigridur_Fridriksdottir_LOK2106.pdf | 3.02 MB | Takmarkaður | Úr hásæti - heild | ||
Utdrattur.pdf | 114.03 kB | Opinn | Úr hásæti - útdráttur | Skoða/Opna |