Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/830
Staðarval milli Akureyrar og höfuðborgarsvæðisins : mismunur á rekstrarkostnaði fyrirtækja milli Akureyrar og höfuðborgarsvæðisins með tilliti til launa- og húsnæðiskostnaðar
Staðarval fyrirtækja er mikilvægt, líta þarf til ýmsa þátta þegar ákvörðun um
það er tekið. Horfa þarf á þætti líkt og vinnuafl á svæðinu, flutningskerfi,
viðhorf samfélagsins, landfræðileg einkenni og veður, framboð á landi,
framboð á hentugu húsnæði o.s.frv. Þessa þætti verða fyrirtæki að vega og
meta, því þeir hafa mismunandi vægi meðal fyrirtækja þegar kemur að
staðarvali. Ef slæm ákvörðun er tekin getur það haft í för með sér að kostnaður
verður meiri en reiknað var með og/eða að fyrirtæki missi samkeppnisforskot
sitt. Þess vegna er mjög mikilvægt að skoða vel alla áhrifaþætti. Verkefnið fólst
í því að kanna mismun á rekstrarkostnaði fyrirtækja milli höfuðborgarsvæðis
og Akureyrar með tilliti til launa- og húsnæðiskostnaðar. Í ljós kom að mun
lægra verð er á húsnæði á Akureyri heldur en á höfuðborgarsvæðinu, gat
munurinn verið næstum 50%. Skoðaðar voru árstekjur starfsmanna í iðnaði,
verslun og fjármálaþjónustu, í ljós kom að töluverður munur er á tekjum milli
svæðana, í þessum þremur starfsgreinum voru launin lægri á Akureyri heldur
en á höfuðborgarsvæðinu.
Þarafleiðandi er þónokkur munur á rekstrarkostnaði fyrirtækja í sambandi við
launa- og húsnæðiskostnað á þessum tveimur svæðum. Ekki er hægt að taka
afstöðu til þess hvor staðurinn sé hentugri fyrir fyrirtæki vegna þess að ekki
voru rannsakaðir allir þeir þættir sem hafa áhrif á staðarval, en í ljós kemur að
launa- og húnæðiskostnaður er lægri á Akureyri heldur en á
höfuðborgarsvæðinu.
Fimm lykilorð:
• Staðarval
• Launakostnaður
• Húsnæðiskostnaður
• Akureyri
• Höfuðborgarsvæðið
Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri
Nafn![]() | Stærð![]() | Aðgangur![]() | Lýsing![]() | Skráartegund | |
|---|---|---|---|---|---|
| Efnisyfirlit.pdf | 79,5KB | Opinn | Staðarval - efnisyfirlit | Skoða/Opna | |
| Heimildaskrá.pdf | 90,0KB | Opinn | Staðarval - heimildaskrá | Skoða/Opna | |
| SKýrslan í heild s... .pdf | 1,14MB | Takmarkaður | Staðarval - heild | ||
| Útdráttur.pdf | 49,6KB | Opinn | Staðarval - útdráttur | Skoða/Opna |