is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Verkfræði- og náttúruvísindasvið > B.S. verkefni - Verkfræði- og náttúruvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/8300

Titill: 
  • Inspired by Iceland. Viðhorf til markaðsátaksins
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Við eldgosið í Eyjafjallajökli leit út fyrir að ferðaþjónustan í landinu yrði fyrir miklum skaða. Því var ákveðið að fara í markaðsátak til að reyna að bjarga ferðamannasumrinu 2010. Átakið, Inspired by Iceland, var samstarfsverkefni íslenska ríkisins, Reykjavíkurborgar, Icelandair, Iceland Express, Íslandsstofu, markaðsstofa landshlutanna og aðila í Samtökum ferðaþjónustunnar. Markmið rannsóknarinnar var að kanna viðhorf þeirra sem starfa við markaðssetningu í ferðaþjónustu til Inspired by Iceland markaðsátaksins og hvort áhrif átaksins hafi verið svipuð um allt landið eða hvort einhverjir hlutar þess hafi komið betur út en aðrir. Við gagnaöflun var notast við eigindlegar rannsóknaraðferðir. Tekin voru sex opin viðtöl og í þremur tilfellum var viðtalsrammanum svarað í gegnum tölvupóst. Niðurstöður sýna að viðmælendur voru almennt ánægðir með að farið var í þetta átak. Sérstaklega var fólk ánægt með þá samvinnu sem átakið leiddi til meðal ferðaþjónustuaðila í landinu. Þó eru nokkrir vankantar sem fólk benti á. Þar ber helst að nefna val á markhópum og dreifing áhrifa átaksins um landsbyggðina. Fólk talar um að það myndi ráðast í annað sambærilegt átak í framtíðiðinni, sérstaklega ef reynt yrði að bæta það sem ekki fór nógu vel í þessu.
    Lykilorð: Inspired by Iceland, markaðsátak, markaðsstofur landshlutanna.

Samþykkt: 
  • 5.5.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/8300


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Finnur Ingi.pdf404.13 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna