Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/8313
Tveir menn eru við silungsveiði í Hraunsvatni þegar undarlegir atburðir fara að gerast, ungur drengur er sendur í betrunarvist til ömmu sinnar en sumarið breytist fljótt í allsherjar fyllerí, tveir menn í blokkarhverfi tengjast dularfullum böndum í gegnum feigð og kött, og í litlu þorpi kemur flækingur sér fyrir á háalofti án þess að ábúandinn viti af honum.
Silungsveiði í Hraunsvatni – & fleiri sögur er safn átta smásagna. Á yfirborðinu er allt stillt og rólegt, en undir niðri kraumar eitthvað. Í sögunum togast á tregi og gleði, draumar og raunveruleiki, líf og dauði. Allar sögunar standa einar og sér en óljósar tengingar má greina á milli þeirra, bæði hvað varðar yrkisefni og persónur.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Silungsveiði í Hraunsvatni - & fleiri sögur.pdf | 288.94 kB | Lokaður | Heildartexti | ||
Titilsíða - Silungsveiði í Hraunsvatni.pdf | 48.71 kB | Opinn | Forsíða | Skoða/Opna |