is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Hugvísindasvið > B.A. verkefni - Hugvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/8378

Titill: 
  • Tálkvendi, kyngervisusli og kynferði konunnar. Ímynd konunnar í La Jongleuse eftir Rachilde
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Í þessari ritgerð er fjallað um kvenímynd 19. aldar og birtingarmynd hennar í list dekadensins. Skoðað er hvað lá að baki þeirra viðhorfa í garð konunnar sem einkenndu öldina, og er sérstaklega horft til hugmynda um kynferði konunnar og ímynd hennar sem tálkvendis.
    Verk Rachilde, La Jongleuse, er rannsakað út frá notkun hennar á kvenímyndum. Haft er í huga sérstakt sjónarhorn Rachilde sem kvenhöfundar í menningu sem einkenndist af kvenfyrirlitningu. Velt er vöngum yfir því hvort og hvernig meðferð hennar á kvenímyndinni var frábrugðin því sem tíðkaðist í verkum dekadensins. Leitast er við að sýna hvernig Rachilde notaði þessar stöðluðu kvenímyndir til að gagnrýna kyngervi og stöðu konunnar.
    Hugmyndir um kyn og kyngervi í verki Rachilde eru rannsakaðar út frá kenningu Judith Butler. Butler leggur áherslu á að kyngervi sé menningarleg afurð og bendir auk þess á leikið eðli þess. Þema hins leikna kyngervis er áberandi í La Jongleuse en aðalpersóna verksins, Eliante, setur sjálfan sig og kyngervi sitt á svið.
    Valdabarátta kynjanna er einnig skoðuð út frá samskiptum Eliante og biðils hennar, Leons. Þá er einkum skoðað sambandið á milli valds og kynferðis, og birtingarmynd þess í La Jongleuse, en í verkinu leitast Rachilde við að sýna fram á hversu erfitt það er fyrir konuna að samræma þrá sína og sjálfstæði.

Samþykkt: 
  • 10.5.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/8378


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
B.A.Ritgerð.pdf1.48 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna