is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Hugvísindasvið > B.A. verkefni - Hugvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/8383

Titill: 
  • Tilvist tímans. Greining á þversögn McTaggarts
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Í fyrri hluta ritgerðarinnar er tekin fyrir ritgerð McTaggarts The Unreality of Time og hugmyndir hans um tímann. Farið er yfir skilgreiningar hans á A-röðuninni og B-röðuninni, hverjir eiginleikar A-röðunarinnar og B- röðunarinnar eru og hversvegna þær eru nauðsynlegar fyrir fullan skilning á tímanum og fyrir tilvist tímans. Síðan er farið yfir aðra nauðsynlega eiginleika tímans, nefnilega breytingu, og hvernig hægt sé að sýna fram á breytingu með A- og B-röðuninni. Þá er farið yfir mismunandi leiðir til að hugsa eiginleika tímans og yfir rök McTaggarts fyrir því að tíminn geti ekki verið raunverulegur. Einnig er tekin fyrir gagnrýnin sem McTaggart telur að verði sett fram á hugmyndir hans, og svör McTaggarts við þeim rakin.
    Í seinni hluta ritgerðarinnar er litið á hvernig hugmyndir McTaggarts hafa þróast síðan The Unreality of Time kom út. Aðallega er litið á tvær megin gagnrýnir sem fram hafa komið á ritgerð McTaggarts, annars vegar á þá hugmynd að A-röðunin sé nauðsynleg fyrir tilvist tímans, og hins vegar á þá niðurstöðu að A-röðunin sé órökleg. Litið er á þau rök sem hafa verið gefin fyrir því að B-röðuninni ein og sér sé nægileg fyrir skilgreiningu tímans og möguleikinn á föstum (e. static) tíma er íhugaður. Einnig er litið á þau vandamál sem myndast við það sjónarhorn, ásamt því að athugað er hvort til sé leið til að hugsa tímann án þess að A-röðunin sé mótsagnarkennd.
    Að lokum er fjallað örstutt um tvö önnur möguleg svör við hugmyndum McTaggarts.

Samþykkt: 
  • 10.5.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/8383


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Tilvist tímans.pdf829.85 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna