is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Viðskipta- og raunvísindasvið > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/848

Titill: 
  • Hlíðarfjall : markaðsathugun í Danmörku : hafa danskir skíðamenn áhuga á að fara á skíði í Hlíðarfjalli?
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Megin markmið skýrslunnar er að skoða þann möguleika, hvort áhugi er
    hjá dönskum skíðaiðkendum að fara í skíðaferð til Akureyrar frá
    Danmörku og stunda skíðamennsku í Hlíðarfjalli.
    Skýrslan skiptist í sex meginhluta. Í fyrstu tveim hlutunum er skoðaður sá
    fræðilegi bakgrunnur, sem nauðsynlegur er við gerð skýrslunnar. Þriðji
    hluti skýrslunnar fjallar um ferðamennsku og samgöngur milli Akureyrar
    og Kaupmannahafnar, þar sem sérstaklega er skoðaður möguleiki á beinu
    flugi milli þessara áfangastaða. Í fjórða hluta er farið í hvernig rannsóknin
    var framkvæmd. Markaðsgreining ásamt öðrum greiningum er að finna í
    fjórða hluta skýrslunnar, þar sem metin er samkeppnishæfni Hlíðarfjalls.
    Úrvinnsla rannsóknaraðferða er skilgreind í sjötta kafla skýrslunnar. Í
    síðasta hluta skýrslunnar eru settar fram niðurstöður sem fengust við þeim
    rannsóknarspurningum sem lagðar voru fram í upphafi, sem mynda
    ákveðinn ramma utan um viðfangsefnið.
    Löng hefð er fyrir skíðaferðum Dana til Noregs og Svíþjóðar. Segja má að
    nálægð landanna geri Dönum auðvelt fyrir að skjótast í nokkra daga
    skíðaferðir til þessara landa. Vinsælasti tími Dana til þess að fara í
    skíðaferðir er í febrúar en þá eru vetrarfrí skólanna.
    Niðurstöður skýrslunnar benda til þess, að ekki sé vænlegt að markaðssetja
    Hlíðarfjall eitt og sér í Danmörku. Stærð fjallsins og afþreyingar
    möguleikarnir eru ekki jafn miklir ef miðað er við önnur skíðasvæði sem
    Danir sækja. Því er ekki líklegt að Danir taki Hlíðarfjall fram yfir önnur
    skíðasvæði sem í boði eru. Vænlegra væri að fara í markaðssetningu í
    samstarfi við aðra ferðaþjónustuaðila á Norðurlandi, þannig væri hægt að
    markaðssetja Norðurland yfir vetrarmánuðina sem einstaka upplifun fyrir
    ferðamenn.
    Lykilorð: Skíðaferðir, Hlíðarfjall, Danmörk, samgöngur, Akureyri og
    ferðaþjónusta.

Samþykkt: 
  • 1.1.2007
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/848


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Hlidarfjall_allt_verkefnid.pdf420.16 kBOpinnHlíðarfjall - heildPDFSkoða/Opna