is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Verkfræði- og náttúruvísindasvið > B.S. verkefni - Verkfræði- og náttúruvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/8494

Titill: 
  • Jarðvegsrof vestan Langjökuls og hugsanleg áhrif loftslagsbreytinga á umhverfi svæðisins
  • Titill er á ensku Soil erosion west of Langjökull glacier and possible impact of climate change on the area
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Markmið þessarar rannsóknar var þríþætt. Í fyrsta lagi var markmiðið að kortleggja jarðvegsrof á rúmlega 3302 km2 stóru svæði vestan Langjökuls til þess að kanna ástand og viðkvæmni landsins og velta fyrir sér hugsanlegum ástæðum fyrir þessu ásigkomulagi náttúrunnar. Í öðru lagi var markmiðið að kanna hvort gróðurhulan væri samfelld eða rofin í skóglendi, kjarrlendi og mýrum svæðisins en fyrri rannsóknir sýna að þessi gróðurlendi séu þolnari gagnvart jarðvegsrofi en mörg önnur. Einnig voru áhrif landslags á áfok á svæðinu könnuð. Fjögur smærri svæði innan rannsóknarsvæðisins voru skoðuð með áðurnefnt markmið að leiðarljósi. Í þriðja og síðasta lagi var markmiðið að hugleiða hvernig ástand landsins á rannsóknarsvæðinu myndi hugsanlega þróast í kjölfar hlýnandi loftslags og hörfunar Langjökuls.
    Helstu niðurstöður voru þær að jarðvegsrof reyndist vera á um 60% rannsóknarsvæðisins og af heildarstærð gróðursnauðs lands reyndust tæp 54% þess vera uppsprettusvæði fyrir áfoksefni. Landið er því mjög viðkvæmt og óstöðugt og landhnignun töluverð. Ástæðurnar fyrir ástandinu eru margar og samofnar en líklegast er að minnkandi hlutfall gróðurhulu og hörfun skóga eftir landnám hafi gert svæðið viðkvæmara fyrir jarðvegsrofi. Jarðvegsrof reyndist vera nokkuð minna í skóglendi og mýrum en í öðrum gróðurlendum og landslagið við Eiríksjökul virðist hindra áfok og skýla gróðri upp að nokkru marki. Erfitt er að segja til um hvernig ástand lands á svæðinu muni þróast í kjölfar hlýnunar en vegna hörfunar Langjökuls myndast meira áfoksefni sem gæti aukið áfok en áfok getur skemmt gróður og valdið auknu jarðvegsrofi. Hins vegar gæti gróður breiðst út og skóglendi stækkað vegna jákvæðra áhrifa hlýnunarinnar.

  • Útdráttur er á ensku

    The aim of this research was threefold. Firstly to evaluate the conditions of the area west of Langjökull glacier (3302 km2), by mapping soil erosion. Possible reasons for the land´s condition were discussed. Secondly to investigate erosion within woodland and wetland vegetation in the area, but these vegetation communities are more resistant to soil erosion than other communities. The effect of landscape on aeolian processes was also investigated. Four smaller areas within the research area were studied in more detail. The third aim of the research was to consider how the land´s condition can evolve under a warmer climate and Langjökull glacier´s retreat.
    The main conclusions were that about 60% of the research area was affected by erosion and that approximately 54% of the eroded areas are sources of aeolian materials. The land is therefore vulnerable and soil erosion is severe. The reasons for the land´s condition are many but it is likely that the reduction of woodland cover and other plant communities of dryland vegetation following the Norse settlement at 874 AD made the land more sensitive to erosional processes. At present woodland and wetland vegetation does not suffer from erosion while other plant communities do. However, the landscape close to Eiríksjökull glacier seemed to hinder aeolian processes. It´s hard to foresee how the land´s condition will evolve under a warmer climate, but erosion could increase because of the glaciers retreat. Nevertheless, vegetation and woodland distribution might increase.

Samþykkt: 
  • 12.5.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/8494


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Jarðvegsrof_vestan_Langjökuls.pdf1.64 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna