is Íslenska en English

Lokaverkefni

Háskóli Íslands > Verkfræði- og náttúruvísindasvið > Rannsóknarverkefni - Verkfræði- og náttúruvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/8552

Titill: 
  • Breytileiki hrygningartíma þorsks (Gadus morhua L.) meðal mismunandi arfgerða Pan I genasetsins
Útdráttur: 
  • Þorskstofninn í kringum Ísland skiptist í stofna eftir mismunandi farhegðun, svipgerð og arfgerð. Tvær meginatferlisgerðir hafa greinst, það er djúpsjávarhegðun og grunnsjávarhegðun og er líklegt að þessir tveir hópar hafi verið aðskildir í nokkurn tíma. Þessar atferlisgerðir hafa verið tengdar við Pan-I genasetið þar sem Pan-IAA fiskur sýnir aðallega grunnsævishegðun, Pan-IBB sýnir aðallega djúpsjávarhegðun og Pan-IAB sýnir báðar atferlisgerðir. Tilgangur þessarar rannsóknar var að kanna hvort að breytileiki væri á hrygningartíma íslenska þorsksstofnsins meðal Pan-I arfgerða. Í þessarri rannsókn var notast við fisk frá mismunandi dýpi suður af Íslandi. Til að áætla hrygningartíma var notast við tiltölulega nýlega aðferð þar sem hrogn eru ljósmynduð og þvermál þeirra mælt með því að nota myndgreiningarforrit og síðan reikna út tíma til hrygningar út frá þvermáli hrogna. Ekki tókst að finna marktækan mun milli arfgerða og tíma til hrygningar en það er greinilegt að margir þættir hafa áhrif á hrygningartíma og því nauðsynlegt að rannsaka það frekar. Vitað er að Pan-I genasetið hefur margvísleg áhrif á þorskinn og er líklegt að þrátt fyrir að ekki hafi fundist bein tengsl við tíma til hrygningar þá er líklegt að Pan-I genasetið hafi í stað óbein áhrif.

Samþykkt: 
  • 17.5.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/8552


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Breytileiki hrygningartíma þorsks meðal mismunandi arfgerða Pan-I genasetsins.pdf612.48 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna