is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Verkfræði- og náttúruvísindasvið > B.S. verkefni - Verkfræði- og náttúruvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/8557

Titill: 
  • Upplifun með íslenska hestinum
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Hvernig upplifum við ferðalög? Margar kenningar eru uppi í ferðamálafræði um væntingar, upplifun og sanngildi ferðalaga. Hendumst við á milli staða með myndavélarnar á lofti og keppumst við að fanga táknin sem við höfum svo lengi heyrt talað um? Sækjumst við eftir upplifun sem skilur okkur eftir steinrunnin og minnir okkur á hversu lítil við erum og máttlaus þegar náttúran er annars vegar? Til grundvallar þessarar ritgerðar eru lögð viðtöl sem tekin voru við erlenda ferðamenn sem höfðu farið í hestaferðir um hálendi Íslands og svo aðila sem tengjast hestatengdri ferðamennsku hér á landi. Flestir upplifðu að verða frá sér numdir af beinni snertingu við náttúruna, sitjandi á hestbaki, en í fræðunum er slík tegund upplifunar kennd við snertingu við hið göfuga (e. Sublime,) upplifun sem minnir okkur á smæð okkar. Margar kenningar fræðimanna sem snúa að upplifun, sanngildi og væntingum fengu byr undir annan ef ekki báða vængi eftir greiningu viðtalanna þó að sitthvað hafi komið á óvart.

Samþykkt: 
  • 18.5.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/8557


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Upplifun með íslenska hestinum.pdf665.96 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna