Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/8559
Skuldir íslenskra háskólanemenda og forspá þeirra er viðfangsefni sem ekki hefur áður verið kannað, svo vitað sé til. Í þessari rannsókn var athugað hvort efnahagsleg stjórnrót (e. Economic Locus of Control) og efnishyggið gildismat (e. Materialistic Value Orientation) spái fyrir um skuldsetningu íslenskra háskólanema (N = 565). Stjórnrót vísar til þess hvort fólk eignar mistök sín innri eða ytri þáttum. Efnahagsleg stjórnrót mælir stjórnrót hegðunar tengda eyðslu og sparnaði. Efnishyggið gildismat vísar til hversu mikla áherslu fólk leggur á veraldlegar eigur sem merki um velgengni og hamingju. Á Íslandi hefur verið sýnt fram á tengsl efnishyggju og skulda. Þá hafa rannsóknir sýnt fram á jákvæða fylgni lítillar innri stjórnrótar við skuldir. Þessi rannsókn sýndi að lítil innri stjórnrót spáði ekki fyrir um skuldir þegar stjórnað var fyrir áhrifum bakgrunnsbreyta. Þátttakendur með efnishyggið gildismat reyndust líklegri til að hafa hærri skuldir en ekki líklegri til að hafa innri stjórnrót líkt og spáð var fyrir um.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Oddrún Ólafsdóttir.pdf | 608.27 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |