is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Heilbrigðisvísindasvið > B.S. verkefni - Heilbrigðisvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/8577

Titill: 
  • Stuðningur við jákvæða hegðun. Beinar áhorfsmælingar á unglingastigi í þremur grunnskólum í Reykjanesbæ vorið 2010
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Stuðningur við jákvæða hegðun (Positive behavior support – PBS) er hegðunarstjórnunarkerfi en hugmyndin af því kom fram um 1980. Markmið kerfisins er að fá fram jákvæða lífstílsbreytingu sem eykur lífsgæði ásamt því að fyrirbyggja hegðunarvanda. Kerfið er hentugt til innleiðingar í grunnskóla og hægt að nota það á alla en það getur líka verið mjög einstaklingsmiðað. Aðferðir PBS eru ekki nýjar af nálinni, heldur er búið að kerfisbinda hefðbundnar jákvæðar aðferðir. Rannsóknir hafa sýnt að eftir innleiðingu kerfisins dregur úr óæskilegri hegðun nemenda og æskileg hegðun eykst. Árin 2008-2009 hófu þrír grunnskólar í Reykjanesbæ innleiðingu á aðferðum PBS og rannsóknir á innleiðingunni eru enn í gangi. Í þessari ritgerð verður farið yfir niðurstöður mælinga sem gerðar voru á vorönn 2010.

Samþykkt: 
  • 19.5.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/8577


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Stuðningur við jákvæða hegðun - Beinar áhorfsmælingar á unglingastigi í þremur grunnskólum í Reykjanesbæ vorið 2010.pdf886.71 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna