is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Heilbrigðisvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Heilbrigðisvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/8586

Titill: 
  • Próffræðileg athugun á The Short Form (36) Health Survey (SF-36) heilsukvarðanum
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Tilgangur þessarar rannsóknar var að meta próffræðilega eiginleika íslenskrar útgáfu The Short Form (36) Health Survey (SF-36). SF-36 er 36 atriða sjálfsmatslisti sem ætlað er að meta heilsutengd lífsgæði fólks. Próffræðilegir eiginleikar SF-36 voru athugaðir með því að meta áreiðanleika, réttmæti og þáttauppbyggingu kvarðans. Til að meta samleitni- og aðgreiniréttmæti SF-36 svöruðu báðir úrtakshópar SF-36 kvarðanum og Beck´s Depression Inventory-II en háskólanemendur svöruðu auk þess HL-prófinu, Perceived Stress Scale og Satisfaction With Life Scale. Þátttakendur rannsóknarinnar voru alls 407, þar af 294 (72,2%) háskólanemar og 113 (27,8%) sjúklingar af verkjasviði Reykjalundar. Í heildina sýndu niðurstöður rannsóknarinnar fram á góða próffræðilega eiginleika SF-36. Innra samkvæmni og aðgreiniréttmæti atriða reyndist í flestum tilvikum gott auk þess sem innri áreiðanleiki allra undirkvarða var oftar en ekki ásættanlegur. SF-36 hafði gott samleitni- og aðgreiniréttmæti við viðmiðunarkvarða rannsóknarinnar auk þess sem hugsmíðaréttmæti kvarðans reyndist gott. Niðurstöður þáttagreiningar sýndu fram á þá tvo meginþætti sem fyrri rannsóknir hafa sýnt fram á, það er líkamlegan og andlegan þátt heilsu, og komu þeir skýrt fram í báðum úrtakshópum. Að lokum kom í ljós að SF-36 kvarðinn er gagnlegur til að greina á milli ólíkra hópa en heilsutengd lífsgæði virtust að meðaltali vera betri hjá háskólanemendum samanborið við sjúklinga.

Samþykkt: 
  • 19.5.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/8586


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Lokaverkefni_SF-36_Margrét_Eiríksdóttir.pdf1.47 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna