Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/8609
Tilgangur rannsóknarinnar var að bera saman eintyngd og tvítyngd börn sem vísað var í athugun á Þroska- og hegðunarstöð vegna gruns um frávik í hegðun eða þroska. Þátttakendur voru 219 börn, þar af voru 86,8% eintyngd og 13,2% tvítyngd. Meðalaldur barnanna var 4,1 ár. Gerður var samanburður á tilvísunarástæðum eintyngdra og tvítyngdra barna, aldri, niðurstöðum úr WPPSI-RIS greindarprófinu, ICD-10 greiningum og vísun í nánari greiningu. Niðurstöður leiddu í ljós að 62% tvítyngdra barna var vísað í athugun vegna málþroska og 56% eintyngdra, sá munur reyndist ekki marktækur. Marktækt fleiri tvítyngd börn greindust þó með frávik í málþroska en eintyngd börn. Frammistaða eintyngdu barnanna á mállegum hluta WPPSI-RIS greindarprófsins var marktækt betri en frammistaða tvítyngdu barnanna. Frekar kom fram misræmi milli mállegs og verklegs hluta WPPSI-RIS hjá tvítyngdum börnum en eintyngdum, þar sem ekki var hægt að greina frá heildartölu greindar fyrir ríflega helming tvítyngdra barna en slíkt misræmi birtist eingöngu hjá 19,5% eintyngdra barna. Getur það bent til þess að WPPSI-RIS mæli ekki sömu mállegu þættina hjá eintyngdum og tvítyngdum börnum.
The purpose of this study was to compare monolingual and bilingual children referred for psychiatric services. The study included 219 children, 85,8% were monolingual and 13,2% were bilingual. Mean age was 4,1 years. A comparison of suspected problems, age, results of the WPPSI-RIS intelligence test, ICD-10 diagnosis and referral to another service was made. The results showed that 62% of the bilingual children and 56% of the monolingual children were referred for suspected language impairment. Significantly more bilingual children than monolingual were diagnosed with language deficits. On the Verbal subtests of the WPPSI-RIS the monolingual children outperformed the bilingual children. However, the children‘s performance was equal on the Performance subtests of the WPPSI-RIS. Given the significant discrepancy between the Verbal subtests and the Performance subtests on the WPPSI-RIS for the bilingual children, a full scale IQ could not be calculated for over half of the bilingual children (19,5% of monolingual children). This might indicate that the WPPSI-RIS does not measure the same verbal factor constructs in bilingual children as in monolinguals.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaeintak ritgerð.pdf | 3.2 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |