is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Heilbrigðisvísindasvið > B.S. verkefni - Heilbrigðisvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/8616

Titill: 
  • Greining einhverfurófsraskana á fullorðinsárum. Afturvirk athugun á greiningarsögu nokkurra einstaklinga sem greinst hafa með röskun á einhverfurófi eftir 18 ára aldur
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Markmið rannsóknarinnar var að varpa ljósi á vanda fólks með röskun á einhverfurófi, en einhverfa hefur lítið verið rannsökuð meðal fullorðinna. Sjúkraskrár einstaklinga sem greinst höfðu með röskun á einhverfurófi eftir 18 ára aldur, með nýju greiningarferli við fullorðinsgeðsvið Landspítalans, voru skoðaðar. Þátttakendur voru fjórir, þar sem þetta voru þeir einu sem uppfylltu skilyrði fyrir þátttöku. Skoðuð var geð- og atferlisgreiningarsaga þátttakenda þ.e. hverjar voru fyrri geð- og atferlisgreiningar, á hvaða aldri greiningarsagan hófst og hversu lengi einstaklingur hefur notið geðheilbrigðisþjónustu Landspítalans. Athugað var hvort hugsanlega sé hægt að útskýra vangreiningu á einhverfurófsröskunum út frá greiningarsögu þátttakendanna.
    Úrvinnsla gagna er í mikilvægum atriðum nær því að vera eigindleg en megindleg, einskonar ferilslýsing (e. case study). Kannað var hvort einhver mynstur væru til staðar, í geð- og atferlisgreiningarsögu þátttakenda, sem gefa innsýn í eðli hópsins og eiginleika hans. Niðurstöður bentu til að nokkur sameiginleg atriði mætti finna í geð- og atferlisgreiningarsögu þátttakendanna. Flestir greindust með Asperger heilkenni og meðalaldur við greiningu var 25,8 ár. Meðalfjöldi fyrri geð- og atferlisgreininga var 7,8 og lengd greiningarsögu þátttakendanna var frá einu ári upp í tíu ár. Þessir einstaklingar skoruðu að meðaltali hærra en aðrir hópar á skimunarlistum sem notaðir voru í greiningarferlinu og ýmis sameiginleg mynstur voru í þroskasögu þeirra, til dæmis höfðu allir sögu um erfiðleika í fæðingu. Farið var yfir ályktanir sem hægt var að draga af niðurstöðunum og varpað fram spurningum sem hægt væri að kanna frekar í stærri rannsóknum.

Samþykkt: 
  • 20.5.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/8616


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Greining einhverfurófsraskana á fullorðinsárum - lokaútgáfa.pdf451.38 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna