Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/8622
Andstæðuáhrif koma fram þegar foreldrar meta systkini ólíkari en erfðafræðilegur skyldleiki gefur til kynna og fela í sér vanmat á einkennum einhverfu hjá systkinum barna sem greind hafa verið með einhverfu. Vegna hættu á slíkum áhrifum hefur verið lögð meiri áhersla á að nota svör kennara á Spurningalistanum um félagslega svörunarhæfni (SRS) þrátt fyrir að rannsóknir hafi ekki getað sýnt fram á andstæðuáhrif og benda til að lítill sem enginn munur er á svörum kennara og foreldra á listanum. Markmið þessa lokaverkefnis er að kanna hvort andstæðuáhrif séu til staðar í mati foreldra á einhverfurófseinkennum samkvæmt SRS. Aðaltilgátan var sú að systkinabörn ættu að sýna meiri einkenni samkvæmt SRS en systkini en það gefur til kynna andstæðuáhrif. Þátttakendur voru 988 íslensk börn og unglingar á aldrinum 2-18 ára en öll gögn voru fengin frá Íslenskri erfðagreiningu. Hér var um að ræða blandað úrtak af börnum greind með röskun á einhverfurófi og ættingjum þeirra. Niðurstöður sýndu engan marktækan mun á milli systkina og systkinabarna. Þetta bendir til andstæðuáhrifa þar sem systkini ættu almennt að vera líklegri til að sýna meiri einkenni vegna meiri skyldleika við vísitilfelli. Þá virðist sem andstæðuáhrif séu meiri þegar foreldrar meta systkini af sama kyni en virðast koma fram hvort sem um er að ræða yngri eða eldri aldurshópa. Misvísandi niðurstöður koma fram hvað varðar mat á systkinum á svipuðum eða á ólíkum aldri en andstæðuáhrif virðast ekki meiri eftir auknum alvarleika greiningar. Mikilvægustu niðurstöðurnar eru þær að andstæðuáhrif virðast hafa áhrif á mat foreldra á systkinum barna með einhverfu en nauðsynlegt er að kanna frekar eðli og umfang þessara áhrifa svo hægt sé að gera grein fyrir afleiðingum þeirra á skimun og greiningu einhverfurófsraskana.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaverkefni_Karen_Lind_Gunnarsdottir_2011.pdf | 546.75 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |