is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Viðskipta- og raunvísindasvið > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/862

Titill: 
  • Er vænlegt að nota hugmyndafræði klasa til eflingar atvinnulífs í Stykkishólmi?
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Verkefni þetta snýr að því að athuga hvort að hugmyndafræði klasa henti til
    eflingar atvinnulífs í Stykkishólmi. Notast var við kenningar Michaels E. Porter
    um samkeppnishæfni og klasasamstarf þar sem skoðað var hvað þarf að vera til
    staðar til að klasaverkefni nái framgangi.
    Við greiningarvinnuna var horft til fyrirliggjandi gagna sem snerta grunngerð
    samfélagsins. Þá voru tvær spurningakannanir framkvæmdar. Annars vegar
    fyrir fyrirtæki í bænum til að afla upplýsinga um grunngerð þeirra og vilja til
    samstarfs. Hins vegar fyrir íbúa bæjarins 18 ára og eldri í þeim tilgangi að
    kanna skiptingu í atvinnugreinar, menntunarstig og íbúaþróun. Að lokum var
    framkvæmd SVÓT greining til að greina styrkleika, veikeika, ógnanir og
    tækifæri í sveitarfélaginu.
    Helstu niðurstöður gefa að mati höfunda til kynna að hugmyndafræði klasa sé
    nálgun sem geti hentað við eflingu atvinnulífs í Stykkishólmi.
    Lykilorð: Atvinnulíf, demantskenning, klasaverkefni, samstarf, sveitarfélag.

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri
Samþykkt: 
  • 1.1.2007
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/862


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
ER_VAENLEGT_AD_NOTA_HUGMYND.PDF418.1 kBTakmarkaðurEr vænlegt - heildPDF