is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Verkfræði- og náttúruvísindasvið > B.S. verkefni - Verkfræði- og náttúruvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/8632

Titill: 
  • Ímyndarsköpun ferðaþjónustu á jaðarsvæðum: Strandir sem áfangastaður ferðamanna
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Ímynd áfangastaða er mikilvægt atriði í ferðaþjónustu og hefur veruleg áhrif á ákvörðunartöku ferðamannsins varðandi val á áfangastað. Í dag standa flest öll jaðarsvæði frammi fyrir verulegri áskorun varðandi þróun ferðaþjónustu og þarf ímynd þeirra að draga athygli ferðamanna að sérstöðu svæðisins og þeirri einstöku upplifun sem er þar í boði. Á jaðarsvæðum verður sérstaða aðdráttaraflsins enn mikilvægara en á kjarnasvæðum, þar sem ferðamaðurinn þarf að eyða meiri tíma og fjármunum til að koma sér á svæðið. Umráð yfir aðdráttarafli er ekki trygging fyrir að ferðaþjónusta blómstri á jaðarsvæðum heldur liggur velgengnin frekar í því hvernig til tekst að koma upplýsingum um sérstöðu svæðisins til skila til ferðamannsins. Meginmarkmið þessarar rannsóknar er að varpa ljósi á ímyndarsköpun og markaðssetningu ímyndar hjá íslenskum ferðaþjónustufyrirtækjum á jaðarsvæðum. Það var gert með því að kanna ímynd ferðaþjónustufyrirtækja á Ströndum þar sem svæðið fellur vel innan skilgreiningar á jaðarsvæðum. Rannsóknin byggir á sex viðtölum við aðila sem reka ferðaþjónustu á svæðinu eða hafa haft afskipti af skipulagsmálum á Ströndum. Niðurstöður leiddu í ljós að ekki er mikil samstaða meðal ferðaþjónustuaðila á Ströndum varðandi ímyndarsköpun, sú ímynd sem áhersla er á í markaðssetningu svæðisins er frekar ímynd Vestfjarða sem heild. Ferðaþjónustan telur svæðið geta boðið ferðamönnum upp á einstaka upplifun sem ekki finnst á öðrum stöðum en það vantar að skilgreina nákvæmar í hverju sérstaðan liggur. Ferðaþjónustuaðilar á Ströndum telja svæðið að öllu leyti falla innan skilgreininingar á jaðarsvæðum en hafa ekki nýtt staðsetningu svæðisins né sérstöðu til að ná til ákveðins markhóps ferðamanna.

Samþykkt: 
  • 20.5.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/8632


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Lokaritgerð BS.pdf936.7 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna