is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Verkfræði- og náttúruvísindasvið > B.S. verkefni - Verkfræði- og náttúruvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/8651

Titill: 
  • Samfélagsleg áhrif hliðarvega á bæjarsamfélög. Færsla Suðurlandsvegar norður fyrir Selfoss
  • Titill er á ensku Social impact of bypass routes on towns. South Iceland Highway moved to a location outside the town of Selfoss
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Umferð um Suðurlandsveg, þar sem hann liggur frá Hveragerði og austur fyrir Selfoss, hefur verið að aukast mikið á síðustu árum og í dag er þjóðvegurinn einn sá fjölfarnasti á landinu. Í náinni framtíð hyggst Vegagerðin tvöfalda veginn og færa hann út fyrir Selfoss í þeim tilgangi að auka umferðaröryggi og afkastagetu hans. Framkvæmdir þar sem þjóðvegur flyst út fyrir þéttbýli geta haft víðtæk áhrif í för með sér, samfélagsleg og umhverfisleg í jákvæðum og neikvæðum skilningi. Markmið rannsóknarinnar var að skoða möguleg samfélagsleg áhrif framkvæmdarinnar á Selfoss og varpa skýrara ljósi á mikilvægi þess að rannsaka og meta þau áhrif til að koma í veg fyrir að hagsmunaaðilar verði fyrir neikvæðum áhrifum í kjölfar framkvæmda. Við gagnaöflun voru tekin sex opin viðtöl við einstaklinga sem tengdust áætluðum framkvæmdum á Suðurlandsvegi á einhvern hátt. Helstu niðurstöður sýndu að mikilvægt er að flytja veginn út fyrir þéttbýli. Vegurinn er orðinn að faratálma þar sem hann liggur í gegnum Selfoss og umferðartafir á álagstímum algengar. Í kjölfar færslu Suðurlandsvegar út fyrir Selfoss myndi ferðatími fólks sem á leið um svæðið styttast og umferðaröryggi aukast. Lífsskilyrði íbúa á Selfossi myndu batna, draga myndi úr mengun innanbæjar og aðgengi að þjónustu yrði betra í kjölfar minni umferðar í gegnum bæinn. Mikilvægt er að hagsmunaaðilar á svæðinu séu vel upplýstir um ólíka áhrifaþætti framkvæmdarinnar og nýti þau markaðstækifæri sem felast í færslu Suðurlandsvegar út fyrir bæinn. Það þarf að vinna markvisst af því að búa til sérkenni og skapa aðdráttarafl til að koma í veg fyrir neikvæð efnahagsleg áhrif.
    Lykilorð: samgöngubætur, hliðarvegir, samfélagsleg áhrif, markaðstækifæri

  • Útdráttur er á ensku

    Traffic on South Iceland Route 1, Ring Road, where it lies from Hveragerði through Selfoss, has constantly been increasing in the last few years. Today it is one of the most travelled roads in the country. With the construction of a new road The Icelandic Road Administration (i. Vegagerðin), is planning to make a two lane wide road in each direction and bypass the town of Selfoss. With the construction of a new highway, road safety will be increased and the road will support more traffic. An enterprise which involves moving a highway outside an urban area can have an extensive social and environmental impact, in a negative as well as a positive way. The objective of this research is to study the possible social influences of the road construction on the community in Selfoss. Emphasis is put on the importance of research and evaluation of possible influences so that interested parties can avoid negative effects in the aftermath of the project. In the gathering of data six open interviews were taken with individuals that are in some way connected to the project. The main results confirm the importance of moving the road outside the urban area. The road is a traffic hazard where it lies through Selfoss and traffic jams are common. A bypass around Selfoss on Route 1 would improve living conditions in Selfoss, pollution in the town would decrease and accessibility to services would be better as the traffic through Selfoss falls. However, it is vital for interested parties in the area to exploit the marketing opportunities that will emerge when the South Iceland Route 1 is moved out of Selfoss. Extensive work has to be put into creating distinctive features for the community to attract tourists and travelers to the area so that negative influences will be as insignificant as possible.
    Keywords: traffic reform, bypass route, social impact,marketing opportunity

Samþykkt: 
  • 23.5.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/8651


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
AldisArnardottir.BS.pdf628.31 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna