Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/8658
Áhrif birtu á stærð og fjölda fiska veidda í botnvörpu við strendur Íslands
Gögn úr leiðangri Hafrannsóknastofnunar á Árna Friðrikssyni RE 200 sem farinn var norður af Íslandi í nóvember 2010 voru notuð til þess að athuga hvort að samband væri milli þess hvaða tíma dags (dagur-nótt) veiði fer fram og stærð þeirra fiska sem að fengust, eða hvort að samband væri milli birtu og fjölda fiska sem veiddust. Fjórar tegundir voru skoðaðar með tilliti til þessa: 1) þorskur (Gadus Morhua), 2) ýsa (Melanogrammus aeglifinus), 3) karfi (Sebates mariunus) og 4) skrápflúra (Hippoglossoides platessoides). Veiðarfærið sem notast var við í þessum leiðangri var botnvarpa með yfirpoka. Rannsóknin leiddi í ljós að fjöldi veiddra fiska var ekki háður birtustigi (p>0.05) hjá þessum tegundum óháð tegundum. Þetta er ólíkt niðurstöðum sambærilegra rannsókna þar sem samband er á milli birtustigs og fjöldi veiddra fiska (Adlerstein og Ehrich, 2003). Niðurstöður sýndu hins vegar marktækt samband á milli stærðar veiddra fiska og birtu og reyndist þannig hjá öllum fjórum tegundunum (p<0,05).
Nafn![]() | Stærð![]() | Aðgangur![]() | Lýsing![]() | Skráartegund | |
|---|---|---|---|---|---|
| BSc _ritgerd_Bjark... .pdf | 426KB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |