Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/8664
Miklar breytingar hafa orðið á samfélagsgerð okkar síðustu áratugi og á vinnumarkaði eiga margar ólíkar kynslóðir samskipti sín á milli sem kalla á nýjar áherslur innan fyrirtækja og einnig nýja stjórnunarhætti. Markmið þessarar rannsóknar er að kanna hvernig íslenskir stjórnendur mæta þörfum nýrrar kynslóðar, Y - kynslóð á vinnumarkaði. Þessi kynslóð er fædd á árunum 1980-2000. Leitað er svara við spurningunni: Hvernig birtist viðhorf og sýn íslenskra stjórnenda til Kynslóðar - Y? Til að svara spurningunni voru tekin hálfopin viðtöl við tíu ólíka stjórnendur. Við greiningu á viðtölunum var beitt hefðbundnum eigindlegum greiningaraðferðum og leitað að þemum til að draga fram og lýsa hugmyndum viðmælenda. Niðurstöðurnar sýna að íslenskir stjórnendur eru allir sammála um að tilkoma Kynslóðar - Y á vinnumarkaðinn krefjist endurskoðunar fyrri starfs- og stjórnunarhátta. Þeir telja að með Y - kynslóðinni muni koma fram ný gildi og nýtt vinnusiðferði. Íslenskir stjórnendur telja Kynslóð - Y ekki eins trygga og holla fyrirtækjum og fyrri kynslóðir. Kynslóð - Y setur vinnuna ekki í forgang, heldur persónuleg málefni ólíkt eldri kynslóðum. Stjórnendurnir eru ennfremur sammála um að Kynslóð - Y búi yfir minni sveigjanleika en eldri kynslóðir. Kynslóð - Y leggur mikla áherslu á ýmis fríðindi og sveigjanlegan vinnutíma. Helstu kostir Kynslóðar - Y er dugnaður, metnaður og löngun til þess að gera vel. Kynslóð - Y er að þeirra mati vel menntuð og býr yfir mikilli tæknikunnáttu en hefur haft fá tækifæri til að afla sér reynslu á vettvangi.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
24.Thegar_kynslodir_maetast_Gudrun_Gylfi.pdf | 240.46 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |