is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Viðskipta- og raunvísindasvið > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/866

Titill: 
  • Áhrif samruna fyrirtækja á starfsánægju starfsmanna
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Miklar breytingar hafa orðið í íslensku viðskiptalífi undanfarin ár með
    tilkomu samruna fyrirtækja. Samruni getur viðskiptalega séð verið
    ábatasamur, en það er alltaf að koma betur í ljós að hann skapar mikla streitu
    hjá starfsfólkinu sem gengur í gegnum hann. Fræðimenn hafa sýnt fram á að
    samruni getur skapað kvíða og mikla streitu á meðan á samrunanum stendur.
    Einnig hefur verið bent á að samruni nái ekki fjárhagslegum markmiðum
    sínum, en það má rekja beint til þess að ekki hefur verið hugað nægilega vel
    að starfsfólkinu við framkvæmd samrunans. Í ritgerðinni er fjallað almennt
    um stjórnun og mannauðsstjórnun, breytingastjórnun og menningu. Áhersla er
    lögð á þætti eins og starfsánægju starfsmanna, menningu fyrirtækja, samruna
    fyrirtækja og breytingar í kjölfar samruna. Íslandssími, Tal og OgVodafone
    sameinuðust í apríl 2003. Í ritgerðinni eru skoðuð þau áhrif sem samruni
    fyrirtækjanna hafði á starfsánægju og líðan starfsfólksins. Könnunin var lögð
    fyrir starfsmenn Vodafone sem störfuðu hjá Íslandssíma og Tali fyrir
    samrunann og byggir á megindlegri aðferðarfræði.

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri
Samþykkt: 
  • 1.1.2007
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/866


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Áhrif samruna fyrirtækja á starfsánægju starfsmanna.pdf1.92 MBTakmarkaðurÁhrif samruna - heildPDF
Efnisyfirlit Ásta og Jóhanna.pdf6.48 kBOpinnÁhrif samruna - efnisyfirlitPDFSkoða/Opna
Heimildaskrá Ásta og Jóhanna.pdf24.05 kBOpinnÁhrif samruna - heimildaskráPDFSkoða/Opna
Útdráttur Ásta og Jóhanna.pdf6.59 kBOpinnÁhrif samruna - útdrátturPDFSkoða/Opna