is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Heilbrigðisvísindasvið > B.S. verkefni - Heilbrigðisvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/8676

Titill: 
  • Þjónusta við börn með einhverfu: Athugun á ánægju foreldra með þjónustuna
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Tilgangur rannsóknarinnar var að athuga ánægju foreldra með þjónustu við börn með einhverfu, hvaða meðferð skapi mestu ánægjuna og hvort ánægja hafi áhrif á álag á fjölskylduna. Þetta er fyrsta rannsókn sinnar tegundar á Íslandi svo vitað sé til. Útbúin var rafræn könnun sem send var til allra meðlima í Umsjónarfélagi einhverfra. Þátttakendur voru 106 foreldrar barna á aldrinum 0-12 ára sem greind eru með einhverfu. Niðurstöðurnar voru í samræmi við rannsóknir frá Bandríkjunum, foreldrar voru ánægðari með atferlisþjálfun heldur en TEACCH. Það er þó ekki vegna þess að foreldrar eyði meiri tíma í atferlisþjálfun heldur er eitthvað annað sem veldur ánægjunni. Þrátt fyrir að meiri ánægja ríki með atferlisþjálfun voru foreldrar barna í atferlisþjálfun með meiri áhyggjur af framtíð barna sinna heldur en foreldrar barna í TEACCH.

Samþykkt: 
  • 23.5.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/8676


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Þjónusta við börn með einhverfu, Athugun á ánægju foreldra með þjónustuna.pdf1.07 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna