is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Viðskipta- og raunvísindasvið > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/8715

Titill: 
  • Hver er efnahagslegur ávinningur Hrunamannahrepps af frístundabyggðum og hvaða áhrif hafa þær á ferðaþjónustu svæðisins?
Námsstig: 
  • Bakkalár
Höfundur: 
Útdráttur: 
  • Vinsældir sumarhúsa eða frístundahúsa eru vaxandi meðal Íslendinga og á undanförnum árum hefur sumarhúsum fjölgað mjög og fjölmennar frístundahúsbyggðir risið í dreifbýli Suðurlands. Við það eykst straumur ferðamanna sem hafa hér viðdvöl og nýta þjónustu sveitarfélaganna og ferðaþjónustunnar.
    En hver er efnahagslegur ávinningur sveitarfélaga af frístundahúsabyggðum og hvaða áhrif hafa þær á ferðaþjónustu svæðisins? Til að svara þeirri spurningu voru ársreikningar sveitarfélaga skoðaðir og upplýsingar þaðan greindar, það voru tekin viðtöl og gerð stutt könnun á meðal íbúa í frístundabyggðum. Til samanburðarburðar voru svo fræðilegar greinar í tímaritum og bókum skoðaðar.
    Niðurstöðurnar voru ekki afgerandi en benda þó til þess að álögur á íbúa hækka meðan á uppbygging stendur en efnahagslegur ávinningur er af frístundabyggðum til lengri tíma litið, þær styðja við samfélagið með aukinni atvinnu og styrkja ferðaþjónustu.
    Það má því telja að efnahag Hrunamannahrepps sé betur borgið með hóflegri frístundabyggð sem er í góðu jafnvægi við íbúa og umhverfi.
    Lykilorð: Sveitarfélög, frístundabyggðir, ferðamennska, frístundaeigendur, efnahagur.

  • Útdráttur er á ensku

    Abstract
    Second homes are widespread in Iceland and its popularity is increasing among Icelanders. In recent years the number of second homes has increased greatly in the rural areas of South Iceland.
    But what are the economical benefits to the local communities and what impact does it have on local tourism? This paper focuses on the economic impact on local community and tourism. Second home owners were interviewed and asked to answer a brief survey, local authorities were interviewed and articles and books were reviewed for comparison,
    The results suggest that the municipalities’ expenses outweigh the income while development of infrastructure and tourist industry is in progress. In the long run the local communities will economically benefit from the second homes excistence. Second homes and second homes tourism will strengthen the foundation of local tourism and the economy of local communities as long as the development of the structure is in balance with nature and the community.
    keywords: economic, second home, second home tourism, second home owners, local communities.

Samþykkt: 
  • 25.5.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/8715


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Hver er efnahagslegur_avinningur.pdf26.09 kBOpinnEfnisyfirlitPDFSkoða/Opna
hver_er_efnahagslegur_avinningur_hrunamannahrepp.pdf300.95 kBOpinnMeginmálPDFSkoða/Opna