Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/881
Lykilatriði gæðastjórnunar er að greina þarfir viðskiptavina og samskipti
milli þeirra og starfsmanna, gera hlutina rétt, fylgjast með árangri og bera
saman við markmið. Þá þurfa að vera stöðugar umbætur og framfarir, auk
þess sem stjórnendur þurfa að vera traustir leiðtogar sem vísa veginn, setja
skýra stefnu og sjá til þess að starfsmenn viti að hverju er stefnt.
Það er mun erfiðara að mæla gæði þjónustu heldur en gæði framleiddra
vara. Einn af þáttunum sem gerir slíkt erfitt er sá að viðskiptavinirnir geta
verið óánægðir þó þeir kvarti ekki. Hjá Svæðisskrifstofu sem sinnir
málefnum fatlaðra er mun erfiðara að mæla gæði þeirra þjónustu sem hún
veitir og meta ánægju viðskiptavina þar sem að helstu viðskiptavinirnir eru
fatlaðir einstaklingar og hluti af þeim á erfitt með að tjá skoðanir sínar. Því
þurfa stjórnendur svæðisskrifstofunnar að starfa í anda gæðastjórnunar,
beita hugmyndafræði hennar og hafa vilja til umbóta.
Eftir rannsókn á stöðu mála hjá Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra á
Reykjanesi kom í ljós að skrifstofan hefur náð að vinna á veikleikum
sínum án þess að miss niður mikið af styrk sínum. Mesta framför
framkvæmdaþáttanna voru samstarfsaðilar og innri þættir sem og ferli. En
þeir voru slakastir af framkvæmdaþáttunum í matinu 2001. Mesta framför
árangursþáttanna voru ánægja viðskiptavina og starfsmanna. En þeir voru
einnig með veikari þáttunum í matinu 2001. Það má því með sanni segja
að Svæðisskrifstofan hefur bætt frammistöðu sína til muna.
Lykilorð:
Gæðaverðlaun
Gæðastjórnun
EFQM
Sjálfsmat
Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
islgaedaverdlaun.pdf | 589.29 kB | Takmarkaður | Íslensku gæðaverðlaunin - heild | ||
islgaedaverdlaun_e.pdf | 18.37 kB | Opinn | Íslensku gæðaverðlaunin - efnisyfirlit | Skoða/Opna | |
islgaedaverdlaun_h.pdf | 29.69 kB | Opinn | Íslensku gæðaverðlaunin - heimildaskrá | Skoða/Opna | |
islgaedaverdlaun_u.pdf | 23.29 kB | Opinn | Íslensku gæðaverðlaunin - útdráttur | Skoða/Opna |