is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Viðskipta- og raunvísindasvið > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/881

Titill: 
  • Íslensku gæðaverðlaunin : greining á sjálfsmati Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra á Reykjanesi
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Lykilatriði gæðastjórnunar er að greina þarfir viðskiptavina og samskipti
    milli þeirra og starfsmanna, gera hlutina rétt, fylgjast með árangri og bera
    saman við markmið. Þá þurfa að vera stöðugar umbætur og framfarir, auk
    þess sem stjórnendur þurfa að vera traustir leiðtogar sem vísa veginn, setja
    skýra stefnu og sjá til þess að starfsmenn viti að hverju er stefnt.
    Það er mun erfiðara að mæla gæði þjónustu heldur en gæði framleiddra
    vara. Einn af þáttunum sem gerir slíkt erfitt er sá að viðskiptavinirnir geta
    verið óánægðir þó þeir kvarti ekki. Hjá Svæðisskrifstofu sem sinnir
    málefnum fatlaðra er mun erfiðara að mæla gæði þeirra þjónustu sem hún
    veitir og meta ánægju viðskiptavina þar sem að helstu viðskiptavinirnir eru
    fatlaðir einstaklingar og hluti af þeim á erfitt með að tjá skoðanir sínar. Því
    þurfa stjórnendur svæðisskrifstofunnar að starfa í anda gæðastjórnunar,
    beita hugmyndafræði hennar og hafa vilja til umbóta.
    Eftir rannsókn á stöðu mála hjá Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra á
    Reykjanesi kom í ljós að skrifstofan hefur náð að vinna á veikleikum
    sínum án þess að miss niður mikið af styrk sínum. Mesta framför
    framkvæmdaþáttanna voru samstarfsaðilar og innri þættir sem og ferli. En
    þeir voru slakastir af framkvæmdaþáttunum í matinu 2001. Mesta framför
    árangursþáttanna voru ánægja viðskiptavina og starfsmanna. En þeir voru
    einnig með veikari þáttunum í matinu 2001. Það má því með sanni segja
    að Svæðisskrifstofan hefur bætt frammistöðu sína til muna.
    Lykilorð:
    Gæðaverðlaun
    Gæðastjórnun
    EFQM
    Sjálfsmat
    Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri
Samþykkt: 
  • 1.1.2006
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/881


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
islgaedaverdlaun.pdf589.29 kBTakmarkaðurÍslensku gæðaverðlaunin - heildPDF
islgaedaverdlaun_e.pdf18.37 kBOpinnÍslensku gæðaverðlaunin - efnisyfirlitPDFSkoða/Opna
islgaedaverdlaun_h.pdf29.69 kBOpinnÍslensku gæðaverðlaunin - heimildaskráPDFSkoða/Opna
islgaedaverdlaun_u.pdf23.29 kBOpinnÍslensku gæðaverðlaunin - útdrátturPDFSkoða/Opna