is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Heilbrigðisvísindasvið > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/8835

Titill: 
  • Meðferðarsamband : samskipti hjúkrunarfræðinga við sjúklinga og aðstandendur í líknandi meðferð í heimahúsum
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Tilgangur: Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna samskipti milli hjúkrunarfræðinga, sjúklinga og aðstandenda þegar líknandi meðferð í heimahúsi er veitt. Stuðst var við kenningu Peplau um þróun samskipta í meðferðarsambandi milli hjúkrunarfræðings og sjúklings. Þetta er mjög verðugt viðfangsefni til rannsóknar þar sem samskipti eru mikilvægur þáttur í myndun meðferðarsambands hjúkrunarfræðinga og sjúklinga.
    Aðferð: Rannsóknin er hluti af stærri rannsókn sem nær til allra hjúkrunarfræðinga sem vinna við líknandi meðferð í heimahúsum. Úrtak rannsóknarinnar voru fjórir hjúkrunarfræðingar sem ekki var búið að taka viðtöl við. Rannsóknargagna var aflað með hálf stöðluðum viðtölum. Við greiningu gagna var notuð Grunduð kenning.
    Niðurstöður: Helstu niðurstöður rannsóknarinnar voru að þátttakendur töldu fagmennsku í starfi vera mjög mikilvæga og að þeir sinntu sjúklingum á þeirra forsendum. Fram kom hjá öllum þátttakendum hversu mikilvægt það væri að mynda góð tengsl í upphafi meðferðarsambands og að traust væri mikilvægt í starfi hjúkrunarfræðinga sem sinntu líknandi meðferð í heimahúsi. Einnig töluðu þátttakendur um að undirbúa þyrfti lok meðferðarsambands vel. Við gagnagreiningu komu fram fimm undirþemu sem endurspegluðu það sem þátttakendur töldu vera mikilvæg í meðferðarsambandi. Þau voru: undirbúningur; samskipti; tengsl; traust og lok meðferðarsambands. Síðasta skref gagnagreiningarinnar var að finna sameiginlegt yfirþema sem var lýsandi fyrir öll undirþemun, en það var fagmennska í hjúkrun. Niðurstöður gefa vísbendingar um að hjúkrunarfræðingar sem sinna líknandi meðferð í heimahúsum eru meðvitaðir um mikilvægi þess að mynda gott og traust samband við sjúklinga og fjölskyldur þeirra.
    Lykilhugtök: krabbamein, líknandi meðferð, meðferðarsamband, samskipti.

Athugasemdir: 
  • Athugasemdir er á óskilgreindu tungumáli Verkefnið er lokað til 1. maí 2013
Samþykkt: 
  • 31.5.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/8835


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
meðferðarsamband milli hj.fræðinga og sj..pdf706.28 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna