is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Viðskipta- og raunvísindasvið > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/8840

Titill: 
  • Vistvæn umhverfisstefna
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Umhverfismál eiga vaxandi fylgi að fagna. Frá því um 1990 hefur orðið vitundarvakning hjá almenningi, stofnunum og stjórnvöldum varðandi verndun umhverfisins. Í kjölfar stofnunar íslenska umhverfisráðuneytisins 1990 og heimsráðstefnunnar um umhverfismál í Ríó de Janeiro 1992 hafa æ fleiri fyrirtæki og stofnanir sett sér umhverfisstefnu.
    Landspítali hefur sett sér það markmið verða leiðandi í umhverfisstefnu og vistvænum innkaupum á Íslandi. Á Landspítala er verið að móta umhverfisstefnu og endurskoða verkferla með umhverfisþætti í huga. Stefnt er að því að nýr spítali sé „Grænn spítali“ og verði fyrirmynd annarra fyrirtækja í umhverfismálum.
    Einn af þeim ferlum sem eru í skoðun á Landspítala er prentun, pappírsnotkun og förgun pappírs. Notkun pappírs er eitt af mikilvægum umhverfismálum sem hægt er að hafa áhrif á með stefnumótun og verkferlum. Lágmarksnotkun pappírs getur haft bæði fjárhagslegan og umhverfislegan ávinning.
    Í þessari ritgerð verður fjallað um þróun vistvænnar umhverfisstefnu. Leitað er svara við spurningunni: Getur umhverfisstefna og fjárhagsleg hagræðing farið saman?
    Ég leitaði upplýsinga um stefnu Landspítala í umhverfismálum, sérstaklega varðandi upplýsingum um pappírsnotkun og prentun. Ég fjalla um hvort úthýsing á prentumhverfi geti borgað sig umhverfislega og fjárhagslega. Kostnaðartölur vegna pappírs og upplýsingar um magn voru fengnar fyrir síðastliðin 3 ár og gerður samanburður.
    Virk umhverfisstefna getur leitt til fjárhagslegrar hagræðingar. Með því að vekja starfsmenn til vitundar um notkun pappírs í starfi sínu má hagræða í rekstri og hlífa umhverfinu.
    Lykilorð: Vistvæn umhverfisstefna, hagræðing í rekstri, kostnaðargreining, minni pappírsnotkun, rusl.

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er lokað
Samþykkt: 
  • 31.5.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/8840


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Microsoft Word - johanna_lokaritgerd 14.04.2011.pdf455.46 kBLokaðurPDF