is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/8859

Titill: 
  • Skólaval í Garðabæ : viðhorf og skoðanir foreldra barna í 1. bekk
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Markmið þessarar rannsóknar var að kanna hug og viðhorf foreldra sex ára barna í Garðabæ til skólavals. Skólaval hefur verið við lýði í Garðabæ frá árinu 2004 og hafa foreldrar frá þeim tíma haft frjálst val um í hvaða skóla innan bæjarins börn þeirra fara. Lítið hefur verið vitað um viðhorf foreldra í bænum til valsins. Því var gildi rannsóknarinnar að safna saman upplýsingum og finna út þá þætti sem styðja skólaval og hvað það er helst sem hamlar því. Leitast var við að fá svör við ýmsum þáttum skólavals eins og hvaða þættir það eru sem mestu ráða við ákvörðunina, viðhorfum foreldranna til kynninga skólanna og skoðanir þeirra á samkeppni á milli skóla. Ennfremur var skoðað hvort greina megi einhver tengsl á milli þátta í svörum foreldra við bakgrunn þeirra. Gögnum í rannsóknina var safnað með spurningarlistum en sendur var listi í tölvupósti á annað foreldri allra barna í 1.bekk í fjórum grunnskólum Garðabæjar samtals til 154 einstaklinga. Jafnmargir feður og mæður voru í úrtakinu. Alls svöruðu 94 spurningalistanum eða 61%. Vefkannakerfið Outcome var notað við vinnsluna.
    Meginniðurstaða rannsóknarinnar er að foreldrar barna í Garðabæ eru mjög ánægðir með að hafa val. Rúmlega 94% foreldra var því sammála að það sé mikilvægt fyrir foreldra og börn að geta valið á milli grunnskóla. Flestir velja skóla í nágrenni heimilis og vegna félagatengsla. Orðspor og góðir kennarar voru einnig ástæður sem margir tiltóku. Tæpur helmingur foreldranna sótti enga skólakynningu áður en þeir tóku ákvörðun um valið en þeir sem fóru á kynningar voru í 35% tilvika mjög sammála því að þær væru gagnlegar. Ánægja með skólana var áberandi mikil en 96% foreldra voru ánægðir. Foreldrar telja samkvæmt rannsókninni að börnunum sé boðið upp á nám við hæfi í skólunum en 93% foreldra eru því sammála.
    Ekki verður alhæft út frá niðurstöðum rannsóknarinnar heldur er hér gerð grein fyrir röddum allmargra foreldra. Af rannsókninni má þó ýmislegt læra sem nýst getur skólafólki, foreldrum og sveitarstjórnarmönnum í Garðabæ og annarsstaðar.

  • Útdráttur er á ensku

    School Choice in Garðabær
    Attitude and opinion of parents of children in grade one
    The goal of this study was to look at the opinions of parents with children beginning primary school in Garðabær regarding school choice.
    School choice has existed in Garðabær since 2004; since that time parents have had the right to choose any school in town for their children. Parents´ attitudes regarding school choice in the town had not been explored. The good of this study was to collect information to find out what factors promote and inhibit school choice. The study was an attempt to get answers regarding school choice, including parents´ attitudes to how schools promote themselves at Open Houses and their reasons for their school choice. The relationship between parents socio-economic background´and their answers was examined. A questionnaire was used to evaluate perspectives. A list was sent via email to one of the parents of all children in grade one, four schools totaling 154 individuals. Equal numbers of fathers and mothers were in the sample. The response rate to the questionnaire was 61%. Quantative methods were used for collecting and processing data.
    The conclusion of this research indicate that parents of children in Garðabær are satisfied with school choice. More than 94% of parents were very satisfied and agreed that it is important for parents and children to be able to choose between schools. Most parents choose a school near home because of social networks. Reputation and good teachers were also reasons given for selection. Half of the parents attended an “open house” before they decided on a school. Of those who went to an “open house”, 35% strongly agreed that they were useful. Satisfaction with schools was very high, i.e. 96% of parents strongly or quite agreed. 93% of the parents in the study feel that their child is offered an appropriate education in school.
    Though it isn‘t possible to generalize from the conclusions of this study, the voices of the parents are valid and should be listened to. School staff, parents and town officials in Garðabær and elsewhere can gain insight and guidance from the study.

Samþykkt: 
  • 31.5.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/8859


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
ólöf S. sigurðardóttir.pdf1.05 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna