is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Viðskipta- og raunvísindasvið > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/8873

Titill: 
  • Hvað þarf að hafa í huga þegar ákvörðun er tekin um það í hvaða mynt eigi að taka lán ?
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Í ritgerð þessari er fjallað um þá þætti sem koma til með að hafa áhrif á þann kostnað sem við þurfuð að bera við lántöku. Það er að mörgu að hyggja þegar ákvörðun er tekin um það hvers konar lán geti verið hagstæðast. Margir óvissuþættir varðand framtíðina skipta þar miklu máli og einnig sú áhætta sem óvissan skapar. Þeir þættir sem mestu máli skipta og fjallað er um eru vextir, verðbólga, verðtrygging og gengi gjaldmiðla. Í umfjöllun um vexti er farið í að útskýra mismunandi vexti og sýnt hvernig þeir eru reiknaðir. Stýrivextir Seðlabanka Ísland kynntir og fjallað um það hvernig Seðlabanki Íslands notar vextina sem stjórntæki. Áhrif verðbólgu og verðtryggingar ásamt því að skoða tilurð verðtryggingar. Gengi gjaldmiðla, hvernig það er ákvarðað og hvaða þættir eru það sem hafa áhrif á gengi gjaldmiðla og einnig hvaða áhrif gengi gjaldmiðla hefur á hagkerfið. Hin ýmsu form lána eru kynnt og að lokum gerður útreikningur þar sem borin eru saman lán í íslenskum krónum og lán í erlendri mynt ástamt myntkörfuláni. Það er ekki hægt að komast að einni ákveðinni niðurstöðu varðandi það hvaða lán sé hagstæðast, það þarf að skoða alla þá þætti hverju sinni sem hafa áhrif á lánin. Hvernig staðan í vaxtamálum er hverju sinni með tilliti til verðbólgu. Það þarf að skoða raunverulegt verðmæti vaxta þegar verið er að bera saman vexti. Gengi gjaldmiðla hefur einnig mikil áhrif en það hefur reynst mjög erfitt að spá fyrir um gengi gjaldmiðla til skemmri tíma og oft virðist gengisþróun litla stoð eiga í þróun undirliggjandi efnahagsstærða. Áhættan felst einna helst í vaxtaáhættu vegna breytilegra vaxta og einnig gengisáhættu vegna óhagstæðra hreyfinga á erlendum gjaldmiðlum gangvart íslensku krónunni.
    Lykilorð: Vextir, verðbólga, verðtrygging, gjalmiðlar, lán.

Samþykkt: 
  • 31.5.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/8873


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
útreikningur lána - rannsókn.xlsx315.87 kBLokaðurFylgiskjölMicrosoft Excel
Lokaritgerð GK.pdf1.1 MBLokaðurHeildartextiPDF