Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/8891
Tilgangur þessarar ritsmíðar er að kanna vægi námsþátta í stærðfræði 8. -10. bekkja grunnskóla. Vægi inntaksmarkmiða í námskrá, kennslubókum í stærðfræði og samræmdum prófum er kannað og skipt niður í flokka og hlutfallslegt vægi þeirra sett upp í töflur. Töflurnar voru notaðar til samanburðar milli námskrár, kennslubóka í stærðfræði og samræmdra prófa. Sérstök áhersla var lögð á markmið eins námsþáttar, Tölfræði og líkindafræði. Niðurstöður um vægi námsþátta voru notaðar í viðtölum við fólk sem með vinnu sinni hefur áhrif á hvernig vægi þeirra birtist í kennslubókum og prófum. Þátttakendur í rannsókninni voru fimm talsins, tveir höfundar stærðfræðikennslubóka, ritstjóri hjá Námsgagnastofnun, stærðfræðikennari í unglingadeild grunnskóla og höfundur samræmdra prófa hjá Námsmatsstofnun.
Þó að ekki megi alhæfa um niðurstöður rannsóknarinnar gefur hún vísbendingar um:
-Að vægi námsþáttarins Tölfræði og líkindafræði sé svipað í
námskrá og í kennslubókum.
-Að verulegur munur sé á vægi námsþáttarins Tölfræði og líkinda-
fræði í samræmdum prófum (2009-2010) og í kennslubókum (og
námskrá).
-Að túlkun kennslubóka og námsmats sé byggð á Aðalnámskrá
grunnskóla, stærðfræði, en vægi námsþátta byggist aðallega á
þrepamarkmiðum námskrárinnar.
-Að leið breytinga og þróunar í námi og kennslu liggi í gegnum
kennslubókina en þurfi samt stuðning og jákvæð viðhorf kennara.
-Að tregða sé á allar breytingar á skólastarfi sem og á
starfsemi stofnana og sjóða, breytingar taki langan tíma og
venjur og hefðir hafi mikið að segja um hvernig hlutirnir eru
gerðir.
-Að nauðsynlegt sé að kennarar meti námskrá og kennsluefni á
eigin spýtur og fái í hendur einhvers konar matstæki í því
augna-miði.
-Að aukin áhersla á námsþætti eins og Lausnaleit, Röksemda-
færslu og Tengsl við daglegt líf eins og talað er um í formála
Aðalnámskrár grunnskóla, stærðfræði, 2007 sjáist aðeins í
þrepamarkmiðum sem eru í viðauka námskrárinnar.
Í lokin er svo fjallað um hvernig yfirvöld geta komið áherslum sínum til framkvæmda í skólastofunni. Minnst er á leiðir eins:
-Í gegnum breytingar á námskránni sjálfri.
-Í gegnum fulltrúa sína í sjóðum og stofnunum sem hafa með
námsefni að gera.
-Í gegnum eftirlit með skólastarfi.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
lokaverkefni_mai_prentun.pdf | 998.48 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |