Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/8893
Ljóðagangan stóð formlega yfir í eitt ár; hófst þann 31. janúar 2010 og lauk ári síðar þann 31. janúar 2011. Ljóðagangan er á netmiðlinum Eyjan.is. Slóðin er http://blog.eyjan.is/joninaos. Í Ljóðagöngunni birtust 152 ljóð eftir 85 skáld á því ári sem hún stóð yfir. Að meðaltali birtist ljóð í göngunni annan hvern virkan dag. Ljóðagangan var afsprengi hrunsins. Hún var hugsuð sem öðruvísi sýn á veruleikann sem almenningur var að glíma við í kreppunni í kjölfar hrunsins. Hún var hugsuð sem bæði gleðigjafi og baráttutæki í senn, sem listræn útfærsla á reiði og sorg. Hún átti að minna á hvað við eigum stórar innistæður í hugverkum þrátt fyrir forgengileika þess sem mölur og ryð fær grandað. Netljóðagangan var hugsuð sem ljós í myrkri. Ástæðan er sú að að finna má ljóð um allar mannlegar kenndir og um leið var þetta hagnýt leið til menningarmiðlunar.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
01_FORSIDA_JO.pdf | 74.8 kB | Opinn | Forsíða | Skoða/Opna | |
02_TITILSIDA_JO.pdf | 50.61 kB | Opinn | Titilsíða | Skoða/Opna | |
03_AGRIP_JO.pdf | 51.69 kB | Opinn | Ágrip | Skoða/Opna | |
04_EFNIYFIRLIT_JO.pdf | 53.95 kB | Opinn | Efnisyfirlit | Skoða/Opna | |
05_GREINARGERD_JO.pdf | 407.02 kB | Opinn | Greinargerð | Skoða/Opna | |
06_YFIRLIT_LJODA_JO.pdf | 86.12 kB | Opinn | Viðauki | Skoða/Opna |
Athugsemd: Skráarnafn 03_Ágrip_JO.pdf. Ekki tókst að skrá lýsingu á skránni. Þetta er ágripið sem fylgir greinargerðinni.