is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Þverfræðilegt nám > Umhverfis- og auðlindafræði >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/8942

Titill: 
  • Mat á sjónrænum áhrifum skóga á landslag
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Náttúra Íslands er rómuð fyrir fegurð. Oft verður þó fátt um svör þegar spurt er í hverju þessi náttúrufegurð er fólgin eða hvað það er sem gerir landið okkar svo einstakt. Sérkenni og fegurð lands er einvörðungu hægt að varðveita með hnitmiðaðri skipulagsvinnu sem byggist á vitund um hver mikilvægustu einkenni landsins eru. Vegna sérstöðu landslags hér á landi þurfum við, umfram aðrar þjóðir, að vanda sérstaklega til verka þegar við
    hyggjumst breyta ásjónu landsins með skógrækt sem og öðrum nýframkvæmdum. Aðferðir í mati á umhverfisáhrifum framkvæmda, hafa verið notaðar um tíma á Íslandi t.d. til að varðveita landslagsgildi. Viðfangsefni þessa verkefnis er að setja fram aðferðir sem henta því verkefni að láta nýrækt skóga laga sig sem best að landi, aðferðir sem jafnframt geta nýst við aðrar nýframkvæmdir sem eru matsskyldar samkvæmt lögum um mat á
    umhverfisáhrifum. Þær aðferðir sem nú eru notaðar við slíkt mat, taka ekki nægilegt tillit til sjónrænna þátta. Þegar unnið er að úrbótum er vert að skoða hvaða aðferðir hafa reynst
    nágrannaþjóðum okkar vel. Í þessari ritgerð er einkum stuðst við skoska aðferð. Í ritgerðinni er komið með tillögur um hvernig unnt er að aðlaga þær aðferðir að náttúru okkar eða menningarlandslagi. Kjarni viðfangsefnisins er mat á sjónrænum áhrifum skóga á landslag, en reynsla okkar af því að meta nýræktun skóga er takmörkuð. Þessar aðferðir geta einnig nýst til að meta sjónræn áhrif annarra framkvæmda í viðkvæmu umhverfi.

  • Útdráttur er á ensku

    The nature of Iceland is unique. It can be difficult to describe and define with words the essence of a landscape's most distinctive features. Only by defining the character of a
    landscape, can we, with the help of planning, preserve the natural beauty of a terrain. Because of the uniqueness of Iceland´s landscapes we need to go to greater depths than
    usual as we register and analyze a landscape structure, especially when we are suggesting changes that have visual impact as reforestation and other physical constructs according to
    the law on environmental impact assessment (EIA). The methodological practices mostly employed in Iceland in EIA have until recently not given sufficient justice to the importance of the visual aspects of such studies. A study into the methodologies employed in Scotland is carried out. The focus is on how those professionals have developed their approach to visual questions. The thesis adapts these methods to the characteristics of Icelandic landscapes in the countryside. The core issue of this research project is to investigate how new woodlands can be designed into Iceland’s unique landscapes, in such a way that it strengthens the character of the landscape in a given area. This methodology can also be used for other projects which are to be located in a sensitive landscape.

Samþykkt: 
  • 6.6.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/8942


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Mat á sjónrænum áhrifum skóga á landslag.pdf5.97 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna