Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/8951
Í mörgum framtíðarsögum er fjallað um áhrif aukinnar tækni og vélvæðingar á samfélög manna. Í flestum tilvikum sjá höfundar fyrir sér nýja möguleika á kúgun og misnotkun valds. Líf almennings, og jafnvel hugsanir hans, verði fyrir opnum tjöldum eða að minnsta kosti aðgengilegt yfirvöldum. Þannig verði almenningur varnarlaus gagnvart valdbeitingu af hvaða tagi sem er.
Þessi framtíðarsýn hefur tekið á sig margar myndir. Í kvikmyndum koma fram illmenni og glæpasamtök sem ógna heilum þjóðum og heimshlutum í skjóli nýrrar tækni. Hér má staldra við og spyrja: Er upplýsingatæknin einmitt þessi tækni?
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
b.2007.3.1.3.pdf | 114.18 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |