is Íslenska en English

Grein

Háskóli Íslands > Rafræn tímarit > Stjórnmál og stjórnsýsla >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/8964

Titill: 
  • Afnám einkasölu áfengis. Yfirlit yfir rannsóknir á breytingum á áfengissölu
Útgáfa: 
  • Desember 2007
Útdráttur: 
  • Í skýrslunni er gerð grein fyrir helstu rannsóknum sem gerðar hafa verið á breytingum á áfengiseinkasölu og aðgengi áfengis. Rannsóknir á breyttu fyrirkomulagi áfengissölu eru flestar frá Norður-Ameríku og Norðurlöndunum. Nær allar rannsóknirnar sýna að í kjölfar einkavæðingar á áfengissölu hefur áfengisneysla aukist. Ennfremur er greint frá rannsóknum á breytingum á áfengissköttum, sem leiða í ljós að lækkun þeirra eykur áfengisneyslu og tjón af völdum áfengis. Stuttlega er fjallað um rannsóknir á áfengiskaupaaldri, á reglum um áfengisauglýsingar og viðvörunarmerkingar á áfengi. Til þess að setja þessa þætti áfengisstefnunnar í víðara samhengi er gerð grein fyrir norrænu samstarfi um áfengismál á alþjóðlegum vettvangi og stöðu áfengismála hjá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni og Evrópusambandinu. Greint er frá því að innan Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar er stefnt að samþykkt um áfengismál, sem verði baráttutæki gegn áfengisvandamálum. Þá er sagt frá stefnuskjali Evrópusambandsins og stofnun The European Alcohol and Health Forum, sem innan tíðar mun leggja fram aðgerðaáætlun til þess að vernda íbúa Evrópu gegn skaðlegri neyslu áfengis.

Birtist í: 
  • Stjórnmál og stjórnsýsla, 3 (2) 2007
ISSN: 
  • 16706803
Athugasemdir: 
  • Almenn grein
Samþykkt: 
  • 6.6.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/8964


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
b.2007.3.2.7.pdf155.08 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna