Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/897
Móttökuferli og nýliðaþjálfun hjá Þórsberg ehf.
Á tiltölulega stuttum tíma hefur íslenskt þjóðfélag tekið miklum breytingum. Frá því að vera tiltölulega einhæft bændasamfélag og fiskveiðiþjóð, yfir í nútímalegt samfélag. Þessar breytingar í gegnum árin hafa haft það í för með sér, að atvinnutækifæri landsmanna hafa aukist og orðið fjölbreyttari. Í kjölfar þess að atvinnutækifærunum hefur fjölgað, hefur myndast meiri hreyfanleiki á starfsfólki, og þar með hefur starfsaldur fólks innan fyrirtækja lækkað. Þar sem fyrirtæki vilja hafa sem minnsta starfsmannaveltu, leita þau allra leiða til svo verði. Á góðum stað stendur “í upphafi skyldi endinn skoða”. Það er góð ábending þegar verið er að ráða nýtt starfsfólk. Nauðsynlegt er að taka vel á móti nýju starfsfólki, til að því finnist það, frá fyrsta degi, vera velkomið til fyrirtækisins. Einnig þarf nýliðaþjálfunin að vera sterk, þannig að hinn nýráðni starfsmaður fái sem fyrst innsýn í störf sín og hætta á mistökum verði minni en annars.
Verkefni þetta sem unnið var í samvinnu við Þórsberg ehf. á Tálknafirði miðaði að því að athuga hvort erlendum starfsmönnum fyrirtækisins fyndist að vel hefði verið tekið á móti þeim, og hvernig nýliðaþjálfunin hefði tekist til. Að fyrirtækið geti þannig fundið út, hvort þessi tvö atriði væru að skila sér rétt til nýrra erlendra starfsmanna.
Lykilorð:
Starfsmannaráðningar – móttaka – þjálfun.
Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri
Nafn![]() | Stærð![]() | Aðgangur![]() | Lýsing![]() | Skráartegund | |
|---|---|---|---|---|---|
| thorsberg.pdf | 258KB | Takmarkaður | Móttökuferli og nýliðaþjálfun hjá Þórsberg ehf. - heild | ||
| thorsberg_e.pdf | 95,6KB | Opinn | Móttökuferli og nýliðaþjálfun hjá Þórsberg ehf. - efnisyfirlit | Skoða/Opna | |
| thorsberg_h.pdf | 126KB | Opinn | Móttökuferli og nýliðaþjálfun hjá Þórsberg ehf. - heimildaskrá | Skoða/Opna | |
| thorsberg_u.pdf | 98,6KB | Opinn | Móttökuferli og nýliðaþjálfun hjá Þórsberg ehf. - útdráttur | Skoða/Opna |