is Íslenska en English

Grein

Háskóli Íslands > Rafræn tímarit > Stjórnmál og stjórnsýsla >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/9006

Titill: 
  • Sviptingar í fjárhag lífeyrissjóðanna
Höfundur: 
Útgáfa: 
  • Júní 2009
Útdráttur: 
  • Viðfangsefni þessarar greinar er leit að skýringum þess að fjárhagur lífeyrissjóða hins almenna vinnumarkaðar snerist úr að vera mjög bágborinn í að vera svo sterkur að fá lönd standa Íslandi á sporði þegar kemur að lífeyriseignum mældum sem hlutfall af landsframleiðslu. Til skamms tíma hafa lífeyrissjóðirnir einnig almennt átt fyrir skuldbindingum sínum á tryggingafræðilegan mælikvarða. Fyrirfram má gera ráð fyrir að þættir eins og verðtrygging fjárskuldbindinga, góð ávöxtun eigna, aukið val um fjárfestingarkosti og þrenging á réttindum í samþykktum sjóða hafi ráðið úrslitum. Í ritgerðinni er fjallað um tryggingafræðilegar úttektir sem mælikvarða á fjárhagsstöðu lífeyrissjóða. Leidd eru rök að því að niðurstaða tryggingafræðilegra úttekta sé tiltölulega viðkvæm fyir breytingum á ávöxtunarkröfu, sem er hinn eiginlegi grundvöllur úttektanna. Varpað er ljósi á bága stöðu
    sjóðanna þangað til fjárhagur þeirra snerist við og grafist fyrir um skýringar á þeirri þróun. Leitt er í ljós að verðtrygging eigna sjóðanna hafi ráðið úrslitum í því efni. Sýnt erfram á sterka samleitni sem gætti í viðsnúningi á fjárhag sjóða hins almenna
    vinnumarkaðar um eða upp úr miðjum tíunda áratug 20. aldar. Loks er fjallað um áhrif efnahagshruns haustið 2008 á fjárhag sjóðanna.

Birtist í: 
  • Stjórnmál og stjórnsýsla, 5 (1) 2009, 123-158
ISSN: 
  • 16706803
Athugasemdir: 
  • Fræðigrein
Samþykkt: 
  • 7.6.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/9006


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
a.2009.5.1.6.pdf1.68 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna